PCC skoðar kaup á kísilverksmiðjunni í Helguvík

Kísilverið í Helguvík hefur ekki verið starfrækt frá árinu 2017.
Kísilverið í Helguvík hefur ekki verið starfrækt frá árinu 2017. mbl.is/Árni Sæberg

Arion banki og PCC hafa undirritað viljayfirlýsingu varðandi möguleg kaup PCC á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Þar sem um viljayfirlýsingu er að ræða er á þessum tímapunkti óvíst hvort af kaupunum verði.

Þetta kemur fram í svari Arion banka við fyrirspurn mbl.is, en Kjarninn greindi fyrst frá viljayfirlýsingunni.

„Arion banki hefur um nokkurt skeið kannað ýmsa möguleika varðandi framtíð kísilverksmiðjunnar í Helguvík,“ segir í svarinu.

„Bankinn hefur haft það markmið að annað hvort finna hæfa aðila með viðurkennda reynslu af starfsemi kísilvera til að taka við starfsemi kísilversins eða finna aðrar lausn sem þá fæli ekki í sér að starfsemi hæfist á ný í kísilverinu.“

Verksmiðja PCC á Bakka.
Verksmiðja PCC á Bakka. mbl.is/​Hari

Kís­il­ver­inu var lokað 2017 vegna meng­un­ar. Nú­ver­andi bæj­ar­stjórn er and­víg end­ur­ræs­ingu. Þótt ráðist verði í um­fangs­mikl­ar end­ur­bæt­ur á aðstöðu og rekstri kís­il­vers­ins í Helgu­vík verður áfram óvissa um los­un rok­gjarnra líf­rænna efna og áhrif þeirra á loft­gæði, að mati Skipu­lags­stofn­un­ar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK