„Íslenskt atvinnulíf má engan tíma missa“

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl/Arnþór Birkisson

Þær sóttvarnaaðgerðir sem taka gildi á miðnætti setja strik í reikninginn hjá fjölda fyrirtækja. Stjórnvöld þurfa að stíga fram með trúverðugar efnahagsaðgerðir. Vænta má frekari útfærslu á þeim efnahagsaðgerðum sem kynntar voru í dag eftir helgi.

Þetta segir Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins, í samtali við mbl.is.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið tilkynnti í dag um nýjar stuðningsaðgerðir til að draga úr því tjóni sem fyrirtæki verða fyrir sökum þeirra hertu sóttvarnaaðgerða sem taka gildi á morgun.

„Aðgerðirnar eru augljóslega mjög íþyngjandi og munu setja strik í reikninginn hjá fjölda fyrirtækja. Ég hef lagt þá áherslu að það sé nauðsynlegt að koma til móts við þau fyrirtæki sem verða verst út í þessu. Ljóst er að tíu manna samkomubann og lokun fjölda fyrirtækja mun þýða að ríkissjóður þurfi að stíga fram með trúverðugar efnahagsaðgerðir sem stuðning við þau fyrirtæki sem er gert að loka eða þurfa að starfa í verulegra skertri starfsemi.

Ég vænti þess að strax eftir helgi verði nánari útfærsla birt á þeim efnahagsaðgerðum sem sýnt var á spilin í dag. Enda má íslensk atvinnulíf engan tíma missa eins og sakir standa,“ segir Halldór Benjamín.

Fyrirtæki fá launin endurgreidd

Halldór Benjamín sagði á opn­um fundi efna­hags- og viðskipta­nefnd Alþing­is á þriðjudaginn að helsta bjargræðið fyr­ir at­vinnu­lífið væri að end­ur­greiða fyr­ir­tækj­um hluta launa starfs­manna sinna sem hafa verið skikkaðir í ein­angr­un.

Hann væntir þess að málið komist á rekspöl strax eftir helgi.

„Við höfum talað fyrir því að undanförnu að það sé nauðsynlegt að ríkisstjórnin stígi sömu skref og búið er að stíga í Danmörku, Svíþjóð og Noregi að hluta til. Að tekið verði upp samskonar fyrirkomulag varðandi greiðslu launa í einangrun og verið hefur varðandi greiðslu launa í sóttkví.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK