Ragnar Skúlason hefur verið ráðinn til að leiða hugbúnaðarþróun hjá Tix Ticketing, hugbúnaðarfyrirtækis sem sérhæfir sig í lausnum fyrir miðasölu, CRM og markaðslausnum fyrir menningargeirann.
Ragnar starfaði áður hjá Póstinum þar sem hann var teymisstjóri hugbúnaðarþróunar í upplýsingatæknideild. Ragnar er með tuttugu ára reynslu og þekkingu af hugbúnaðargerð.
Þar áður starfaði Ragnar hjá Meniga sem tæknilegur verkefnastjóri yfir innleiðingum. Þá hefur hann einnig starfað sem teymisstjóri hjá Nova og hugbúnaðarverkfræðingur hjá TM Software og GreenQloud. Ragnar er með MSc próf í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.