Eignir Gildis jukust um 152 milljarða milli ára

mbl.isSigurður Bogi

Eignir Gildis-lífeyrissjóðs námu 916 milljörðum króna í lok árs 2021 og jukust um 152 milljarða á milli ára. Munar þar mest um hreinar fjárfestingartekjur á árinu, sem námu 138,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Hrein nafnávöxtun sjóðsins árið 2021 nam 17,8% sem þýðir að hrein raunávöxtun nam 12,4% samkvæmt ársuppgjöri sem nú liggur fyrir.

Í tilkynningunni segir að góð ávöxtun sjóðsins á árinu 2021 hafi fyrst og fremst verið borin uppi af innlendum og erlendum hlutabréfum og erlendum framtakssjóðum. Innlend skuldabréf hafi einnig skilað góðri ávöxtun á árinu sem og flestir aðrir eignaflokkar.

Sjóðurinn fimmfaldast á 16 árum 

„Góð ávöxtun sjóðsins ætti að vera fagnaðarefni fyrir alla sjóðfélaga en í því samhengi er áhugavert að skoða stöðu sjóðsins þegar hann varð til árið 2005 við sameiningu Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna og bera saman við stöðu hans í dag. Eignir hins nýja sjóðs námu árið 2005 rúmlega 181 milljarði króna sem þýðir að sjóðurinn hefur ríflega fimmfaldast á sextán árum.

Ef horft er tíu ár aftur í tímann, þ.e. til ársins 2011 þá námu eignir sjóðsins ríflega 265 milljörðum sem þýðir að sjóðurinn er í dag ríflega þrisvar sinnum stærri í eignum en hann var þá. Það samsvarar því að hrein eign sjóðsins hafi hækkað um ríflega 65 milljarða á hverju einasta ári frá árinu 2011,“ segir í tilkynningunni.

Gildi er fjölmennasti lífeyrissjóður landsins en í lok árs 2021 áttu tæplega 252 þúsund sjóðfélagar réttindi hjá sjóðnum. Rúmlega 6.700 launagreiðendur greiddu iðgjöld til Gildis fyrir tæplega 53.000 sjóðfélaga á síðasta ári.

Ítarlegar upplýsingar um rekstur Gildis, ávöxtun og afkomu má finna í ársskýrslu sjóðsins sem aðgengileg er hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK