Helen Breiðfjörð nýr mannauðsstjóri Deloitte

Helen Breiðfjörð.
Helen Breiðfjörð. Ljósmynd/Silla Páls

Helen Breiðfjörð hefur verið ráðin í starf mannauðsstjóra Deloitte, að því er fram kemur í tilkynningu.  

Helen hefur undanfarin 10 ár starfað sem starfsmannastjóri hjá SÝN, áður Vodafone, en Helen starfaði hjá félaginu og fyrirrennurum þess í hátt í tvo áratugi. Helen er með meistarapróf í mannauðsstjórnun frá London South Bank University og BA próf í félagsfræði frá Háskóla Íslands. 

„Við erum afar lánsöm að hafa fengið Helen til liðs við okkur enda býr hún yfir viðamikilli reynslu og ástríðu fyrir mannauðsmálum. Við viljum halda áfram að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fólkið okkar og mun Helen mun leiða það mikilvæga verkefni af miklum krafti. Við bjóðum hana innilega velkomna ,“ er haft eftir Þorsteini Pétri Guðjónssyni, forstjóra Deloitte, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK