Hrönn ráðin framkvæmdastjóri

Hrönn Greipsdóttir.
Hrönn Greipsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Hrönn Greipsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í stað Huldar Magnúsdóttur, sem lætur af störfum að eigin ósk um næstu mánaðamót.

Sjóðurinn greinir frá þessu í tilkynningu.

Hrönn er viðskiptafræðingur að mennt með MBA-gráðu í fjármálum auk prófs í verðbréfamiðlun. Hún hefur umtalsverða reynslu af rekstri fyrirtækja, stjórnun og fjárfestingum og hefur frá árinu 2015 stýrt fjárfestingafélaginu Eldey, sem fjárfesti í afþreyingartengdri ferðaþjónustu og var í stýringu hjá Íslandssjóðum.

Setið í fjölmörgum stjórnum

Eignasafn Eldeyjar var selt Kynnisferðum í árslok 2020 og var starfsemin sameinuð um mitt síðasta ár. Áður starfaði Hrönn sem forstöðumaður hjá Arion banka og framkvæmdastjóri hjá SPRON. Þá hefur Hrönn einnig verið framkvæmdastjóri Hótels Sögu ehf., sem rak Hótel Sögu og Hótel Ísland.

Hrönn hefur setið í fjölmörgum stjórnum sem spanna allt frá litlum frumkvöðlafyrirtækjum til eftirlisskyldra fjármálafyrirtækja og er Hrönn í stjórnum átta fyrirtækja á vettvangi ferðaþjónustu, ýmist sem stjórnarmaður eða formaður. Þeirra á meðal eru Kynnisferðir hf. og Reykjavík Excursion hf., Basecamp Iceland ehf., Íslenskar heilsulindir ehf. og Norðursigling hf.

Hlakkar til að takast á við spennandi verkefni

Sigurður Hannesson formaður stjórnar Nýsköpunarssjóðs segir í tilkynningu að það sé fengur fyrir sjóðinn að fá Hrönn til starfa.

„Hún hefur mikla reynslu og þekkingu af fjárfestingum og rekstri fyrirtækja sem mun nýtast sjóðnum sem og nýsköpunarumhverfinu á Íslandi vel. Sjóðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífinu og hefur á síðasta aldarfjórðungi stutt við fjölmörg fyrirtæki, skapað störf og verðmæti. Ég býð Hrönn velkomna til starfa og þakka fráfarandi framkvæmdastjóra, Huld Magnúsdóttur, fyrir góð störf í þágu NSA og nýsköpunar á Íslandi undanfarin ár,“ er haft eftir Sigurði.

Sjálf kveðst Hrönn full tilhlökkunar að takast á við spennandi og krefjandi verkefni í nýsköpunarumhverfinu, þar sem svo mikil gróska ríki um þessar mundir.

„Vonandi nýtist reynsla mín og þekking vel til góðra verka á þessum vettvangi hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.“

Áhugaverður og gefandi

Huld segir að tíminn hjá sjóðnum hafi verið bæði áhugaverður og gefandi, og hún sé mjög þakklát fyrir samstarfið við starfsfólk, stjórn, ráðuneyti og þau öflugu félög sem tilheyri eignasafni Nýsköpunarsjóðs.

„Ég óska þeim öllum góðs gengis í framtíðinni sem ég tel að sé björt í íslensku nýsköpunarumhverfi,” segir Huld, sem tók við starfi framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs vorið 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK