Nova undirbýr skráningu og í hluthafahópinn bætast íslenskir fjárfestar 

Nova var stofnað árið 2006.
Nova var stofnað árið 2006. Ljósmynd/Gunnar Svanberg

Nova hefur ákveðið að hefja undirbúning á skráningu hlutabréfa félagsins á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Stefnt að skráningu á fyrri helmingi þessa árs. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, en þar segir einnig að í aðdraganda fyrirhugaðrar skráningar hafi Nova gengið frá hlutafjáraukningu.

Nýir hluthafar eignast 36% hlut í félaginu

„Tilgangur hlutafjáraukningarinnar er að styðja enn frekar við framtíðarvöxt félagsins og áframhaldandi fjárfestingar svo félagið viðhaldi forskoti sínu í framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina sinna.“

Jafnframt segir, að samhliða hlutafjáraukningunni hafi núverandi hluthafar selt hluta af eign sinni. Nýir hluthafar eignast um 36% hlut í félaginu. Meðal nýrra hluthafa eru sjóðir í rekstri Stefnis, Íslandssjóða og Landsbréfa. Hluthafalisti ásamt ársreikningi og ítarlegri fjárhagsupplýsingum verður birtur í aðdraganda útboðsins, að því er Nova greinir frá. 

Aukin tækifæri fyrir fjárfesta

„Fjarskiptafyrirtæki eru í eðli sínu mikilvæg innviðafyrirtæki og er Nova á meðal stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækja landsins. Vel heppnuð markaðssetning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hefur skilað Nova sterkri markaðshlutdeild og ánægðum og tryggum viðskiptavinum. Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfsfólks hefur skilað félaginu miklum ávinningi og tekjuvexti undanfarin ár. Við fögnum því að fá góðan liðstyrk inn í eigendahópinn og erum spennt fyrir því að stíga það skref að skrá félagið á markað. Með skráningu félagsins fjölgar tækifærum fjárfesta til að koma að uppbyggingu fjarskiptainnviða á Íslandi. Ég hef starfað í ýmsum hlutverkum hjá Nova allt frá stofnun félagsins og hlakka til þessa nýja kafla í sögu Nova,“ er haft eftir Margréti Tryggvadóttur, forstjóra Nova, í tilkynningunni.  

„Við hjá Pt Capital og Nova erum ánægð með nýja hluthafa og hlökkum til að vinna með þeim í átt að frekari vaxtartækifærum og til að styðja við skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Nova hefur sýnt stöðugan vöxt á fjarskiptamarkaði og hefur náð sterkri markaðshlutdeild þar. Okkar stefna er að virkir innviðir fjarskiptakerfis okkar séu í eigu Nova. Fyrirtækið stefnir á framhaldandi vöxt og frekari stuðning við uppbyggingu á 5G fjarskiptakerfi,“ er haft eftir Hugh Short, stjórnarformaðnni Nova og forstjóra Pt Capital LLC. 

Þá segir, að fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafi verið ráðgjafi við framangreinda sölu og mun hafa umsjón með skráningu félagsins á markað.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK