Hera ráðin framkvæmdastýra hjá OR

Hera Grímsdóttir.
Hera Grímsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Hera Grímsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur, OR.

Hera er með meistaragráðu í byggingarverkfræði með áherslu á framkvæmdir og ákvörðunartöku sem og með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Frá 2018 hefur hún verið forseti iðn- og tæknifræðideildar Háskólans í Reykjavík en var áður sviðsstjóri byggingarsviðs við tækni- og verkfræðideild skólans, að því er segir í tilkynningu.

Tækifæri og áskoranir

Hera hefur mikla reynslu af stjórnun og verkefnisstjórnun í flóknum verkefnum. Hún starfaði áður hjá verkfræðistofunni EFLU, fyrst á orkusviði og síðar framkvæmdasviði. Árin 2011 til 2015 stýrði hún alþjóðlegum hátækniverkefnum hjá stoðtækjaframleiðandanum Össuri.

Þá hefur Hera kennt m.a. verkefnisstjórnun og tölfræði hjá HR og í Opna háskólanum til fjölda ára. Hún situr jafnframt í fagráði Tækniþróunarsjóðs Rannís.

„Orkuveita Reykjavíkur og orkulandið Ísland standa frammi fyrir miklum tækifærum sem og áskorunum á komandi árum til að tryggja að auðlindir Íslands séu nýttar á sjálfbæran og hagkvæman hátt. Ég hlakka mikið til að vinna með góðu starfsfólki OR að rannsóknum og nýsköpun á þessum sviðum. Ég tel að reynsla mín úr háskólaumhverfinu og vinna við nýsköpun mun nýtast vel í þessu starfi,“ segir Hera í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK