Marel hagnast um þrjá milljarða

Eiginfjárhlutfall Marels er 49%:
Eiginfjárhlutfall Marels er 49%: mbl.is/Hjörtur

Marel hf. hagnaðist um 21,7 milljónir evra á fyrsta fjórðungi ársins, eða þrjá milljarða króna, samanborið við 21,2 milljónir evra á sama tímabili í fyrra, eða rúmlega 2,9 milljarða.

Eignir Marels í lok tímabilsins námu 287 milljörðum króna og jukust um þrjú prósent milli ára, en þær voru 277 milljarðar á sama tíma í fyrra.

Eigið fé fyrirtækisins nemur nú 1.018,9 milljónum evra en það var 1.023,1 milljónir evra á sama tíma í fyrra.

Eiginfjárhlutfall félagsins er nú 49%.

Framsæknar lausnir

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels segir í tilkynningu að félagið skili nú enn einum metfjórðungi með 422 milljónir evra í mótteknum pöntunum. „Framsæknar lausnir og ákvörðun okkar um að styrkja sölu- og þjónustunet enn frekar til að mæta væntum vexti er greinilega að bera ávöxt og hefur styrkt markaðsstöðu okkar og tekjuvöxt framundan. Á sama tíma er sölu- og markaðskostnaður hár sem hlutfall af tekjum til skemmri tíma,“ segir Árni.

Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marels segir í tilkynningu að félagið …
Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marels segir í tilkynningu að félagið skili nú enn einum metfjórðungi.

Hann segir áhugavert að sjá hve mikið eftirspurn í alifugla- og fiskiðnaði er að vaxa. „Á tímum verðhækkana, njóta þessir iðnaðir þess forskots að þurfa minna fóður til að framleiða hvert kíló af próteini (e. feed conversion ratio). Við aukin ferðalög og opnun veitingastaða er klárt að sushi og annað fiskmeti er aftur á matseðlinum. Á fyrsta ársfjórðungi var umtalsverður vöxtur í pöntunum í fiskiðnaði, góður vöxtur í alifuglaiðnaði, meðan pantanir í kjötiðnaði voru stöðugar á milli fjórðunga.“

Tekjur 372 milljónir evra

Tekjur í fjórðungnum voru 372 milljónir evra, á svipuðu róli og á fjórða fjórðungi en hækkuðu um 11% á milli ára, eins og fram kemur í máli Árna. „Tekjumarkmið okkar voru hærri fyrir ársfjórðunginn, sem byrjaði hægt vegna fjarveru starfsfólks í allri virðiskeðjunni og tilheyrandi truflunum í aðfangakeðju, en tekjur fóru stighækkandi þegar leið á fjórðunginn. Rekstrarframlegð var lituð af þessu og stóð í 8,4% EBIT. Á sama tíma var sjóðstreymi sterkt. Við höfum gripið til aðgerða til úrbóta með breytingum á framkvæmdastjórn og áframhaldandi fjárfestingum í innviðum til að bæta flæði og rekstrarárangur. Við höfum beitt virkri verðstýringu með hækkun verðs síðustu tvo fjórðunga til að vega upp á móti hækkun kostnaðar í aðfangakeðjunni. Við gerum ráð fyrir að tekjur fari stighækkandi á árinu sem mun styðja við betri framlegð og arðsemi. Markmið okkar um 16% EBIT-framlegð í árslok 2023 standa óbreytt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK