Auka framleiðslu um 40% vegna mögulegs olíuskorts

Örn Karlsson á Sandhóli segir að framleiðslugetan sé mikil og …
Örn Karlsson á Sandhóli segir að framleiðslugetan sé mikil og landrými nægt.

Stærsti repjuolíuframleiðandi Landsins, Sandhóll í Meðallandi, Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu, hyggst auka framleiðslu sína um fjörutíu prósent á þessu ári til að bregðast við mögulegum skorti á innfluttri matarolíu og hækkandi innflutningsverði vegna stríðsins í Úkraínu og Covid-faraldursins. Sandhóll selur alla sína framleiðslu innanlands.

Örn Karlsson framkvæmdastjóri og bóndi á Sandhóli segir að búið hafi getu til að auka framleiðsluna töluvert. „Við ætlum að gefa aðeins í. Við erum orðin mun samkeppnishæfari í verði vegna hækkana erlendis. Salan hefur verið stöðug hjá okkur í gegnum árin en þeir höfðu samband við okkur frá Bónus og spurðu hvort við gætum bætt aðeins í. Ég sagðist geta það, en fræið þyrfti að fara í jörð ekki seinna en strax,“ segir Örn.

Matur Olían fæst í Bónus, Nettó Hagkaup og Fjarðarkaupum m.a.
Matur Olían fæst í Bónus, Nettó Hagkaup og Fjarðarkaupum m.a.

Hann segir að samkvæmt fréttum utan úr heimi séu breskar matvöruverslanir byrjaðar að skammta matarolíu til að fólk fari ekki að hamstra. Það lýsi stöðunni á mörkuðum ágætlega. „Hér er mikil framleiðslugeta og nægt land og því getum við gefið verulega í ef við sjáum fram á að geta selt meira.“

Örn segir að það borgi sig þó að fara varlega svo hann sitji ekki uppi með kostnað ef viðbótarmagnið selst ekki.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu sem kom út laugardaginn 30. apríl. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK