Fyrstu farþegar Delta komnir til landsins

Boeing-767 þota Delta á flugi.
Boeing-767 þota Delta á flugi. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta flugferð Delta á þessu ári með ameríska ferðamenn lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun.

Fram kemur í tilkynningu að til að bregðast miklum áhuga á ferðum vestanhafs til Íslands noti Delta 225 sæta Boeing-767 breiðþotu í flugferðum sínum frá New York.

Í lok maí hefst flug félagsins frá Minneapolis/St. Paul og verður flogið daglega frá báðum borgum í allt sumar.

„Þetta er ellefta árið sem Delta flýgur á milli Íslands og Bandaríkjanna. Delta flýgur frá Keflavíkurflugvelli að morgni dags, sem þýðir að vegna tímamismunar er lent í Bandaríkjunum um hádegisbil að staðartíma. Það þýðir að farþegar frá Íslandi geta nýtt sér fjölda tenginga Delta samdægurs frá alþjóðaflugvöllunum tveimur til áfangastaða í Norður-Ameríku og Suður-Ameríku,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK