Verður áfram og berst fyrir því sem hann trúir á

Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno og stjórnandi hjá Twitter.
Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno og stjórnandi hjá Twitter. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter, mun halda áfram að vinna fyrir samfélagsmiðilinn og berjast fyrir það sem hann trúir á – eða að minnsta kosti þar til einhver sparkar honum burt.

Þetta kemur fram í tísti hans í kvöld en þar segir hann jafnframt að hann trúi því að tíminn núna sé einn sá mikilvægasti í sögu forritsins og að stjórnendur beri skyldu gagnvart notendum samfélagsmiðilins og starfsmönnum hans.

Vill tjáningarfrelsi á miðlinum

Eins og frægt er orðið samþykkti stjórn Twitter yf­ir­töku­til­boð auðkýfingsins Elons Musk í síðasta mánuði sem hljóðar upp upp á 44 millj­arða banda­ríkja­dala. 

Musk hefur lýst há­leit­um mark­miðum um framtíð miðils­ins, þar sem mál­frelsi verði haft í fyr­ir­rúmi, en hann hefur áður gagnrýnt að miðillinn takmarki tjáningarfrelsi fólks.

Þykir mörgum þetta varhugaverð þróun og eru margir áhyggjufullir yfir afskiptum Musks af fyrirtækinu, þar á meðal Haraldur.

Ekki farið leynt með óánægjuna

Har­ald­ur stofnaði hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Ueno árið 2014 og seldi það svo árið 2021 til Twitter þar sem hann er í dag stjórn­andi.

Frá því að ljóst varð að Musk væri orðinn stærsti hluthafi í Twitter hefur Haraldur ekki farið leynt með óánægju sína. Þrátt fyrir að verðmæti miðilsins hafi hækkað verulega við yfirtöku Musk, og þar með hlutur Haralds í Twitter, þá líkar honum ekki vel við hann. 

Haraldur gagnrýndi nýlega Jack Dors­ey, stofn­anda og fyrr­ver­andi for­stjóra miðils­ins, í tísti, sem hann eyddi fljótlega í kjölfarið, þar sem hann sagði: „Að byggja upp fyr­ir­tæki snýst um að byggja upp hópa. Al­vöru leiðtogi ver hóp sinn staðfast­lega. Jafn­vel eft­ir að hann hef­ur snúið sér að öðrum hlut­um.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK