Landsbankinn varar við fölskum SMS-skilaboðum

Landsbankinn varar við óprúttnum aðilum.
Landsbankinn varar við óprúttnum aðilum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsbankinn hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann varar við fölskum SMS skilaboðum sem eiga að hafa borist frá bankanum. Varar hann við því að óprúttnir aðilar hafi sent út SMS og tölvupósta þar sem einstaklingar eru beiðnir um að smella á hlekk til þess að uppfæra öryggisupplýsingar sínar.

Eftir að smellt er á hlekkinn opnast innskráningarsíða þar sem fólk er beðið að skrá sig inn. Ef hlekkurinn er opnaður og aðgangsupplýsingar færðar inn hafa prettararnir komist yfir upplýsingarnar og eru viðskiptavinir bankans beðnir um að hafa samband við bankann. Einnig eru þeir beiðnir um að fara beint inn á netbankann og breyta um lykilorð eins fljótt og mögulegt er.

Tilkynningin í heild:

Við vörum við fölskum SMS skilaboðum sem send hafa verið þar sem fólki er bent á að uppfæra öryggisupplýsingar sínar með því að smella á hlekk. Ef smellt er á hlekkinn opnast fölsk innskráningarsíða.

Við sendum aldrei tölvupóst eða SMS með hlekk yfir á innskráningarsíðu netbankans.

Ef þú hefur opnað hlekkinn og skráð þig inn á fölsku síðuna þá eru svikararnir komnir með aðgangsupplýsingarnar þínar. Þá er mikilvægt að þú skráir þig inn með venjulegum hætti, í appinu eða með því að fara á vef bankans og skrá þig inn í netbankann, og breytir lykilorðinu strax.

Þú skalt líka hafa samband við okkur, með því að hringja í s. 410 4000, senda okkur póst á landsbankinn@landsbankinn.is eða í gegnum netspjallið hér á vefnum.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af fölsku skilaboðunum og fölsku innskráningarsíðunni. Takið sérstaklega eftir vefslóðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK