Strætó þarf að greiða 205 milljónir í bætur

Sýknukröfu Strætó var hafnað.
Sýknukröfu Strætó var hafnað. mbl.is/Hari

Strætó bs. hefur verið dæmt til að greiða rútufyrirtækinu Teiti Jónassyni ehf. rúmlega 205 milljónir króna, auk vaxta, í skaðabætur vegna útboðs árið 2010, þar sem innkaupaskrifstofa hafnaði tilboði fyrirtækisins í akstur fyrir Strætó.

Forsaga málsins er sú að í fe­brú­ar 2010 birti Strætó útboðslýs­ingu vegna verks­ins en þar kom fram að það næði til akst­urs al­menn­ings­vagna á 13 leiðum á höfuðborg­ar­svæðinu. Var sjö fyr­ir­tækj­um boðið að taka þátt í útboðinu í sam­ræmi við und­an­gengið for­val og var Teitur Jónasson þar á meðal.

Strætó ákvað að taka til­boði Haga­vagna hf. annars vegar og til­boði Kynn­is­ferða ehf. hins vegar.

Síðar kom í ljós að vagn­ar Haga­vagna hf. uppfylltu ekki körf­ur for­vals- og útboðsgagna og af­henti Strætó því fyr­ir­tæk­inu vagna svo það gæti staðið við skuld­bind­ing­ar sín­ar.

Allra­handa. sem einnig tók þátt í útboðinu, krafði Strætó um 530 millj­óna króna í skaðabæt­ur, en héraðsdóm­ur mat tjónið á 100 millj­ón­ir og staðfesti Hæstirétt­ur þá niður­stöðu, árið 2017.

Bar fyrir sig annmarka og ekkert tjón

Teit­ur Jónas­son hafði þá einnig höfðað mál á hend­ur Strætó og var kom­ist að þeirri niður­stöðu að fyr­ir­tækið hefði brotið gegn meg­in­reglu við um­rætt útboð. Var því viður­kennd­ur rétt­ur Teits Jónas­son­ar til skaðabóta úr hendi Strætó vegna missis hagnaðar sem hann hefði notið ef til­boði hans hefði ekki verið hafnað.

Dómur héraðsdóms nú snýr því að upphæð þeirra bóta.

Strætó krafðist sýknu fyrir héraðsdómi og þá einkum af tveimur ástæðum, annars vegar vegna þess að tilboð Teits Jónassonar hefði verið háð sams konar annmarka og tilboð Hagvagna hf., sem tekið var í útboðinu og leiddi til þeirrar niðurstöðu að Strætó var bótaskylt, og hins vegar að Teitur Jónasson hefði ekki orðið fyrir tjóni.

Lögmaðurinn gat ekki upplýst um ástæðuna

Héraðsdómi Reykjavíkur þótti ekki tækt að taka fyrri ástæðuna til umfjöllunar, og er í dómi dómstólsins vísað til þeirrar meginreglu að ekki sé hægt að efna til nýrra málaferla á grundvelli málsástæðu sem aðila hefði verið unnt að afla efnisúrlausnar um, í fyrra máli gegn gagnaðila.

„Sérstaklega spurður gat lögmaður [Strætó] ekki upplýst af hvaða ástæðu þessari málsástæðu hefði ekki verið hreyft í öndverðu fyrir héraði í málinu sem lauk með dómi Hæstaréttar í máli nr.485/2016,“ segir í niðurstöðukafla dómsins, sem kveðinn var upp á mánudag.

Varðandi þá málsástæðu Strætó, að ósannað væri að Teitur Jónasson hefði orðið fyrir skaðabótaskyldu tjóni vegna hagnaðarmissis, segir í dómnum að það stangist bæði á við niðurstöðu undirmats og yfirmats, en lagt var mat á tjón Teits Jónassonar í þeim báðum og því slegið föstu að það næmi umtalsverðum fjárhæðum.

Var sýknukröfu af þessum ástæðum hafnað, og Strætó eins og áður sagði dæmt til að greiða 205.484.573 krónur, með vöxtum, auk málskostnaðar upp á 5.100.000 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK