Gott rekstrarár hjá Nova

Félagið heldur áfram að stækka og hafa viðskiptavinir félagsins aldrei …
Félagið heldur áfram að stækka og hafa viðskiptavinir félagsins aldrei verið fleiri. mbl.is/Gunnar Svanberg

Hagnaður fjarskiptafélagsins Nova árið 2021 eftir skatta nam tæpum 1,5 milljörðum. 

Í tilkynningu frá Nova segir að tekjuvöxtur á árinu 2021 fyrir einskiptisliði var 7% miðað við árið á undan. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 3,2 milljörðum, samanborið við 2,8 milljarða árið 2020.

Félagið komið lengst í innleiðingu 5G

Nova hefur fjárfest umtalsvert í innviðum sínum á síðustu árum eða fyrir um 12,0%-13,5% af tekjum sem meðal annars hefur leitt til þess að félagið er komið lengst í innleiðingu 5G á Íslandi. 

„Nova hefur verið í forystu í innleiðingu á nýjustu tækni í fjarskiptum. Einstakur hópur starfsfólks sem leggur sig fram við að veita góða þjónustu, ánægja viðskiptavina og forysta í tæknibreytingum hefur skilað Nova þessum rekstrarárangri. Góð afkoma ásamt hlutafjáraukningu mun gera okkur kleift að leggja áfram áherslu á fjárfestingar í virkum innviðum, meðal annars uppbyggingu 5G fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, í tilkynningunni.

Margrét Tryggvadóttir forstjóri Nova.
Margrét Tryggvadóttir forstjóri Nova. Ljósmynd/Gunnar Svanberg

Nýleg hlutafjáraukning

Hlutafé Nova var aukið um 3,5 milljarða í apríl 2022 til að styðja enn frekar við fjárfestingar á 5G fjarskiptakerfi félagsins og styrkja efnahagsreikning.

Þetta þýðir að efnahagsreikningur eins og hann birtist í ársreikningi 2021 hefur styrkst um 3,5 milljarða, bæði í formi niðurgreiðslu á vaxtaberandi skuldum og aukningu á handbæru fé. Eiginfjárhlutfall Nova verður tæp 34% eftir hlutafjáraukninguna og skuldsetningarhlutföll lækka.

Nova hefur ákveðið að hefja undirbúning á skráningu hlutabréfa félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland, en stefnt er að skráningu á fyrri helmingi þessa árs. Ítarlegri fjárhagsupplýsingar verða birtar í aðdraganda útboðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK