Stofna „ljósmóður fyrir loftslagsiðnað“

Davíð Helgason og Kjartan Ernir Ólafsson
Davíð Helgason og Kjartan Ernir Ólafsson Ljósmynd/Transition Labs

Davíð Helgason, stofnandi Unity, stendur að baki stofnun fyrirtækisins Transition Labs, ásamt Kjartani Erni Ólafssyni frumkvöðli og tæknifjárfesti.

Um er að ræða fyrirtæki sem leitar uppi erlend loftslagsverkefni, veitir þeim aðstoð við að komast á legg hér á landi og auðveldar þeim að skala verkefnin upp í rekstrarhæfa stærð. 

Ísland suðupunktur loftslagsverkefna

Í tilkynningu segir að með þessu sé stefnan sett á að gera Ísland að suðupunkti loftslagsverkefna á heimsvísu og færa heiminn með því nær markmiðum um sjálfbæra framtíð. Auk Davíðs og Kjartans skipa stjórn félagsins þau Ásta S. Fjeldsted og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson.

Stofnendur Transition Lans telja að nú þegar séu til fjölmargar áhrifaríkar lausnir sem geti auðveldað baráttuna við loftslagsvandann en flöskuhálsinn hafi reynst sá langi tími sem taki fyrir nýja tækni að ryðja sér til rúms. Þetta ætli fyrirtækið að reyna að leysa.

Fyrirtækið hefur nú þegar hafið samstarf við „sum af metnaðarfyllstu loftslagsverkefnum heims.“

Fyrsta fyrirtækið sem mun hefja uppbyggingu hér á landi fyrir tilstilli Transition Labs, verður kynnt á næstunni.

Aðstoða frumkvöðla við að fæða sín verkefni

Kjartan Örn Ólafsson er framkvæmdastjóri Transition Labs og hann segir að á Íslandi séu kjöraðstæður fyrir ýmiss konar loftslagsverkefni.

„Við eigum í okkar röðum frábært vísindafólk og heilmikla uppsafnaða reynslu af þeim loftslagsverkefnum sem þegar eru starfrækt hér á landi. Við búum að grænni orku, bergtegundum sem nýtast í sumum verkefnum, hafinu sem nýtist í öðrum og þannig mætti áfram telja.“

Nauðsynlegt sé að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á öllum stigum hagkerfisins og jafnframt þurfi að fjarlægja gróðurhúsalofttegundir út andrúmsloftinu til þess að ná markmiðum um kolefnishlutleysi.

„Við höfum stundum lýst okkur sem einhvers konar ljósmóður fyrir loftslagsiðnað framtíðarinnar. Við munum ekki þróa okkar eigin loftslagsverkefni heldur er áherslan á að aðstoða aðra loftslagsfrumkvöðla við að fæða sín verkefni inn í heiminn; hratt og örugglega, og fjarlægja hindranir sem geta verið til staðar.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK