Engin tenging milli fyrirtækjanna

Kristján Geir Gunnarsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Kamba.
Kristján Geir Gunnarsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Kamba. Rax / Ragnar Axelsson

Engin tenging er á milli fyrirtækjanna Gluggasmiðjunnar í Hafnarfirði og Kamba, að því er fram kemur í tilkynningu síðarnefnds fyrirtækisins. 

Tilefnið er frétt þar sem tilkynnt var um sameiningu fjögurra byggingarfyrirtækja undir nafnið Kambar en í hópi fyrirtækjanna má finna Gluggasmiðjuna Selfossi.

Gluggasmiðjan sem fyrirtæki var skipt upp fyrir nokkrum árum í tvö fyrirtæki. Sölu og innflutningsfyrirtæki sem starfar í Hafnarfirðiog svo Gluggasmiðjan Selfossi sem var framfleiðslufyrirtæki og framleiddi glugga og hurðir.

Rekstur Gluggasmiðjunar Selfoss var keyptur í lok árs 2021 og sameinað við Kamba en engin tengsl eru, eða hafa nokkrtíma verið, við eigendur eða rekstraraðila Gluggasmiðjunnar í Hafnarfirði,“ segir í tilkynningu Kamba.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK