Sömdu um kaup og þróun á 38 hektara svæði

Tungumelar eru í Mosfellsbæ.
Tungumelar eru í Mosfellsbæ. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Forsvarsmenn Fasteflis og bílaumboðsins BL undirrituðu samstarfssamning um kaup og þróun á rúmlega 38 hektara landsvæði við Tungumela í Mosfellsbæ nýverið en svæðið er ætlað fjölbreyttri athafnastarfsemi. 

Fréttamiðillinn Mosfellingur greinir frá þessu. 

Íris Ansnes.
Íris Ansnes. mbl.is/Hari

Íris Ansnes, framkvæmdastjóri BL, segir í þeirri frétt að Tungumelar séu spennandi framtíðarsvæði fyrir BL en félagið skoðar nú mögulega framtíðarstaðsetningu. 

Óli Valur Steindórsson.
Óli Valur Steindórsson.

Þá segir Óli Valur Steindórsson, framkvæmdastjóri Festis, að vonbrigði hafi verið hve fá fyrirtæki hafi lagt leið sína að Tungumelum og að stór hluti svæðisins hafi verið nýttur fyrir byggingu á geymslum. Nú horfi aftur á móti til betri vegar þar sem fyrirtækið ætlar að þróa uppbyggingu á svæðinu „og taka þátt í að auðga flóru fyrirtækja í bæjarfélaginu“.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK