Hyggjast grafa mengunina undan ströndum Noregs

Eldar Sætre, forstjóri Equinor.
Eldar Sætre, forstjóri Equinor. AFP

Norska orkufyrirtækið Equinor kynnti í dag verkefni þar sem á að byggja leiðslu til að flytja kolt­víoxíð sem framleiddur er af iðnaðarfyrirtækjum á meginlandi Evrópu til greftrunar undan ströndum Noregs.

Ef verkefnið gengur eftir yrði um að ræða stærsta verkefni í heimi þar sem útblæstri er safnað saman svo hægt sé að grafa hann í jörðu, að því er fram kemur í umfjöllun AFP.

Fyrirtæki í þungaiðnaði líta í auknum mæli á þessa tækni sem leið til að halda áfram rekstri þrátt fyrir sífellt strangari ráðstafanir til að draga úr losun til að berjast gegn loftslagsbreytingum.

Jafngildi losun þriggja til sex milljóna manna

Í yfirlýsingu Equinor kemur fram að leiðslan muni hafa flutningsgetu upp á 20 til 40 milljónir tonna af kolt­víoxíði á ári. Það jafngildi losun frá þremur til sex milljónum einstaklinga í Evrópu.

Belgíska fyrirtækið Fluxys mun vera með bækistöð í bænum Zeebrugge og safna saman kolt­víoxíði frá skipum sem leggja að bryggju og verksmiðjum með tengdum leiðslum.

CO2 verður síðan flutt um leiðslur undir Norðursjó á vegum Equinor sem geymir hann varanlega undir hafsbotni við Noreg.

Verkefnið er enn á hagkvæmnisstigi en vonir standa til að ákvörðun um fjárfestingu verði tekin fyrir árið 2025.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK