Krónan að styrkjast en ekki á móti Bandaríkjadal

„Við eigum enn von á að krónan styrkist frekar og …
„Við eigum enn von á að krónan styrkist frekar og teljum líklegt að evran fari undir 135 í ár. Evran hefur veikst á móti Bandaríkjadal það sem af er ári og hefur ekki verið veikari í 20 ár,“ segir hagfræðideildin. AFP

Eftir að hafa veikst dagana eftir innrás Rússlands í Úkraínu í lok febrúar hóf krónan að styrkjast aftur. Verð á evru fór undir 140 krónur fyrri hluta aprílmánaðar og hefur haldist að mestu á milli 135 og 140 síðan.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

Þar segir einnig, að frá því síðasta Hagsjá var birt um krónuna í júní hafi ekkert gerst sem breyti hagfræðideildar Landsbankas um framvinduna næsta árið.

„Við eigum enn von á að krónan styrkist frekar og teljum líklegt að evran fari undir 135 í ár. Evran hefur veikst á móti Bandaríkjadal það sem af er ári og hefur ekki verið veikari í 20 ár. Seinustu hagtölur frá evrusvæðinu hafa verið frekar veikar, meðal annars mældist halli á viðskiptum við útlönd í Þýskalandi í fyrsta sinn síðan 1991. Evran fór nýverið undir 1,02 Bandaríkjadali og stefnir hraðbyri að því að vera á pari. Þrátt fyrir að evran hafi lækkað um 5,6% á móti krónunni það sem af er ári og vegið meðaltal gjaldmiðla helstu viðskiptalanda okkar (gengisvísitalan) hafi lækkað um 4,4% þá hefur Bandaríkjadalur hækkað um 5,0%,“ segir í Hagsjánni. 

Nánar hér. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK