Takk kaupir Mjöll Frigg af Olís

Margrét Lillý Árnadóttir, Ásgeir Ásgeirsson, stjórnarformaður Takk Hreinlætis, Frosti Ólafsson, …
Margrét Lillý Árnadóttir, Ásgeir Ásgeirsson, stjórnarformaður Takk Hreinlætis, Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Olís, og Finnur Oddsson, forstjóri Haga við undirritun samningsins í dag. Ljósmynd/Aðsend

Olís ehf., dótturfélag Haga hf., og Takk hreinlæti undirrituðu í dag kaupsamning um kaup Takk hreinlætis á öllu hlutafé Mjallar Friggjar. Kaupin eru gerð með fyrirvara um afstöðu Samkeppniseftirlitsins.

Mjöll Frigg er einn stærsti framleiðandi landsins á hreinlætis- og efnavörum og námu tekjur félagsins um 720 milljónum króna árið 2021 og voru ársverk 12 talsins.

Takk hreinlæti er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á ýmsum hreingerningar- og hreinlætisvörum, búsáhöldum og öðrum sérvöruflokkum.

Liður í einföldun rekstrar

„Salan er áframhaldandi liður í einföldun rekstrar Olís og ríkari áherslu á kjarnastarfsemi félagsins. Olís og önnur félög undir hatti Haga munu áfram eiga gott samstarf við Mjöll Frigg um framleiðslu og endursölu ýmissa hreinsi- og efnavara. Nýjum eigendum er óskað til hamingju með kaupin og jafnframt er starfsfólki Mjallar Friggjar þakkað samstarfið á undanförnum árum,” er haft eftir Frosta Ólafssyni, framkvæmdastjóra Olís, í tilkynningu.

„Við sjáum mikla möguleika í þessum kaupum og í þeim felast mikil tækifæri fyrir okkur,“ segir Ásgeir Ásgeirsson, stjórnarformaður Takk Hreinlætis. Með kaupunum muni ársvelta samstæðunnar verða um og yfir 1.100 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK