Síldarvinnslan rýkur upp

Síldarvinnslan á Neskaupsstað hefur keypt öll hlutabréf í Vísi.
Síldarvinnslan á Neskaupsstað hefur keypt öll hlutabréf í Vísi. Ljósmynd/Guðlaugur B. Birgisson

Hlutabréf í Síldarvinnslunni hafa rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun, en í gær var tilkynnt um að fyrirtækið hefði keypt sjávarútvegsfyrirtækið Vísi hf. Í Grindavík fyrir 20 milljarða. Auk þess voru vaxtaberandi skuldir upp á 11 milljarða yfirteknar. Viðskiptin eru með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Síldarvinnslunnar og samþykkis Samkeppniseftirlitsins.

Bréf Síldarvinnslunnar hafa farið upp um 8,92%, en samtals hafa átt sér viðskipti með bréf Síldarvinnslunnar fyrir 135 milljónir það sem af er degi. Standa bréf félagsins nú í 105 krónum á hlut.

Í tilkynningu vegna viðskiptanna í gær var tekið fram að útlit væri fyrir að núverandi fiskveiðiheimildir Síldarvinnslunnar verði með þessu yfir gildandi viðmiðunarmörkum, en komi til þess hefur félagið sex mánuði til að laga sig að viðmiðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK