Áslaug Arna keypti fyrsta bjórinn

Áslaug Arna kaupir fyrsta bjórinn.
Áslaug Arna kaupir fyrsta bjórinn. mbl.is/Jónas Erlendsson

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, varð í hádeginu fyrst til þess að kaupa bjór beint frá brugghúsinu Smiðjunni í Vík í Mýrdal.

Smiðjan var fyrsta brugg­hús landsins sem fékk í hend­urn­ar leyfi til þess að selja bjór á fram­leiðslu­stað í sam­ræmi við breytt lög um smá­sölu áfeng­is.

„Þetta er stórmerkilegur dagur. Það hefur verið óleyfilegt í 110 ár að annað en ríkið geti selt almenningi áfengi og fyrir okkur er þetta stórt skref,“ segir Sveinn Sigurðsson, einn stofnenda Smiðjunnar.

Spurður segir hann að Áslaugu Örnu hafi verið boðið á viðburðinn vegna þess að hún hafi verið sú fyrsta til að leggja fram frumvarp um breytingu á smásölu áfengis.

„Hún hefur stutt mikið við okkur og verið jákvæð í garð okkar,“ segir Sveinn en bjórinn sem hún keypti ber heitið „Er of snemmt að fá sér?“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK