Óskar nýr framkvæmdastjóri Smyril Line

Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo …
Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi og tekur við starfinu af Lindu Gunnlaugsdóttur.

Óskar hefur verið framkvæmdastjóri KAPP ehf. undanfarin þrjú ár, en þar á undan stýrði hann fjölmörgum uppbyggingar verkefnum í flutningageiranum og hefur yfir tveggja áratuga reynslu á því sviði. Óskar mun hefja störf 8. ágúst.

„Ég hef á mínum ferli fengið tækifæri í ýmsum stjórnendastöðum víða um heim innan flutningageirans og síðastliðin þrjú ár stýrt því skemmtilega fyrirtæki KAPP ehf. Flutningabransinn er mjög spennandi á Íslandi og það sem Smyril Line hefur verið að gera hér á landi er einstakt.

Þegar mér gafst svo tækifæri á að taka þátt í áframhaldandi vexti Smyril Line á Íslandi þá var ekki annað hægt en að segja já takk við því. Ég mun kveðja KAPP með söknuði en á sama tíma hlakka ég mikið til nýrra verkefna,“ er haft eftir Óskari í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK