Akademias kaupir Tækninám

Frá vinstri: Guðmundur Arnar Guðmundsson framkvæmdastjóri Akademias, Sigurjón Hákonarsson, fyrrum …
Frá vinstri: Guðmundur Arnar Guðmundsson framkvæmdastjóri Akademias, Sigurjón Hákonarsson, fyrrum eigandi Tæknináms og Eyþór Ívar Jónsson forseti Akademias. Ljósmynd/Aðsend

Fræðslufyrirtækið Akademias hefur fest kaup á Tækninámi, sem sérhæfir sig í fjarnámi í tækninámi og býr yfir einu besta Microsoft kennsluefni á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Akademias.

Segir þar jafnframt að Tækninám hafi verið leiðandi í kennslu á þessum almenna hugbúnaði undanfarin sjö ár. Tækninám muni renna inn í Akademias og verða í kjölfarið um 35 rafrænir áfangar í boði til viðbótar við fjölbreytt úrval námskeiða hjá Akademias.

Eykur framboðið verulega

„Með því að fá Tækninám inn til okkar erum við að bæta við þjónustu til okkar viðskiptavina. Þetta þýðir fyrst og fremst að við munum auka verulega framboð og gæði á námsefni fyrir Microsoft lausnir, sem er mikilvæg viðbót við þann risastóra kubbakassa sam fræðslusafnið okkar er orðið en við erum sífellt að bæta í eftir þörfum viðskiptavina,“ er haft eftir Guðmundi Arnari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Akademias, í tilkynningunni.

„Þetta gerir atvinnurekendum kleift að veita starfsmönnum aðgang að fræðslu meðfram vinnu en einnig að raða saman mismunandi áföngum sem mynda lærdómsferli eða spretti, sem taka á þeim raunverulegum áskorunum innan fyrirtækja og stofnanna. Eins og t.d innleiðingu á nýjum kerfum, koma í veg fyrir streitu og kulnun og hjálpa starfsfólki með verkefnastjórnun, skipulag og markmiðasetningu,” er jafnframt haft eftir Guðmundi Arnari.

Með nærri hundrað áfanga

Loks segir í tilkynningunni að Akademias sé leiðandi í rafrænni fræðslu og eigi þegar stærsta safn af rafrænu fræðsluefni á Íslandi sem fyrirtæki og opinberir aðilar geta fengið aðgang að.

„Áfangarnir sem boðið er upp á eru tæplega 100 talsins, þeim fjölgar um þrjá til fjóra í hverjum mánuði og nú þegar er hafin vinna við að texta þá svo fólk með annað móðurmál en íslensku geti jafnframt eflt sig á vinnumarkaði. Atvinnurekendur geta fengið áfangana inn í sín eigin kennslukerfi eða veitt öllu starfsmönnum aðgang í gegnum kennslukerfi Akademias,“ segir loks í tilkynningunni.

Tækninám var fyrir kaupin í eigu Sigurjóns Hákonarsonar og Hermanns Jónssonar og mun Hermann taka sér stöðu innan Akademias á næstu misserum en Sigurjón kveður við kaupin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK