66°Norður opnar á Hafnartorgi

Verslun 66°Norður á Hafnartorgi.
Verslun 66°Norður á Hafnartorgi. Ljósmynd/Aðsend

Verslun 66°Norður hefur verið opnuð á Hafnartorgi. Hún er staðsett á nýja hafnarsvæðinu við hliðina á Edition-hótelinu og nýjum höfuðstöðvum Landsbankans við Hörpu.

Fram kemur í tilkynningu að verslunin sé 300 fermetrar og með stærstu verslunum 66°Norður. 

„Það var ávallt keppikefli hjá okkur að opna verslun þarna við gömlu höfnina enda var upphaf Sjóklæðagerðarinnar í beinni tengingu við sjóinn og við framleiðslu á skjólfatnaði fyrir íslenska sjómenn sem við sinnum enn þá í dag,“ segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður, í tilkynningu.

Verslun 66°Norður á Hafnartorgi.
Verslun 66°Norður á Hafnartorgi. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK