Ragnhildur ráðin rektor HR til fjögurra ára

dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.
dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.

Ný stjórn Háskólans í Reykjavík (HR) hefur framlengt ráðningarsamning dr. Ragnhildar Helgadóttur rektors til ársins 2026. Hún tók við stöðunni af dr. Ara Kristni Jónssyni árið 2021, en hann hafði þá verið rektor í ellefu ár. Ragnhildur gerði upphaflega samning til eins árs, sem hefur nú verið framlengdur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR.

Ragnhildur hóf að kenna við skólann árið 2002, var forseti samfélagssviðs HR 2019-2021, deildarforseti lagadeildar 2014-2019 og prófessor við lagadeild frá 2006. Ragnhildur var í sex ár formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs og hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Hún hefur kennt við háskóla í Montreal, Ottawa, París og Toulouse.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að nú sé í fyrsta sinn samið við rektor um að gegna starfinu í tiltekinn tíma, fjögur ár, en möguleiki sé á að sami einstaklingur gegni starfinu í tvö tímabil. Þetta sé í samræmi við það sem þekkist í öðrum háskólum á Norðurlöndunum.

Nýja stjórn HR skipa þau Guðbjörg Edda Eggertsdóttir (formaður), Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Svanhildur Hólm Valsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Tanya Zharov aðstoðarforstjóri Alvotech.

„Háskólinn í Reykjavík stendur faglega sterkar en nokkru sinni og það gengur allt afskaplega vel. Skólinn hefur á að skipa frábæru starfsfólki og nemendahópurinn hefur aldrei verið stærri eða sterkari, en 300 starfsmenn og 350 stundakennarar vinna nú með ríflega fjögur þúsund nemendum skólans. Yfirlýst hlutverk HR er að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina og það gerum við með því að skapa og miðla þekkingu. Skólinn stendur mjög vel á alþjóðlegum listum yfir gæði háskóla. Í mínum verkahring er sem fyrr að hugsa um hag skólans í heild. Það gerum við til dæmis með því að efla mannauð okkar í námi, rannsóknum og starfi. Þegar vel tekst til nærum við vaxtarsprota sem leiða til nýsköpunar í atvinnulífi. Við vitum um sextíu sprotafyrirtæki með rætur í verkefnum í HR. Það þykir mér harla gott fyrir ungan skóla af hóflegri stærð,“ segir Ragnhildur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK