Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 5,75%.

„Vísbendingar eru um að vaxtahækkanir undanfarin misseri hafi hægt á vexti almennrar eftirspurnar og dregið úr umsvifum á húsnæðismarkaði. Verðbólga mældist 9,3% í september og hefur hjaðnað um 0,6 prósent frá ágústfundi peningastefnunefndar. Undirliggjandi verðbólga jókst hins vegar milli funda. Þá eru vísbendingar um að verðbólguvæntingar séu farnar að lækka á ný þótt þær séu enn yfir verðbólgumarkmiði bankans“ segir í tilkynningu.

Spenna náð hámarki

Fram kemur að 6,8% hagvöxtur hafi verið á fyrri hluta þessa árs, samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga. Eftirspurn á þriðja fjórðungi ársins virðist hafa verið kröftug en útlit sé fyrir að heldur dragi úr á umsvifum eftir því sem líður á veturinn.

Nýlegar vísbendingar af vinnumarkaði bendi einnig til þess að spenna í þjóðarbúskapnum hafi náð hámarki.

„Þá hafa alþjóðlegar efnahagshorfur versnað og óvissa aukist sem kann að leiða til þess að hraðar dragi úr innlendri eftirspurn en áður var gert ráð fyrir,“ segir í tilkynningunni.

„Peningastefnunefnd mun áfram tryggja að taumhald peningastefnunnar sé nægjanlegt til að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu misserum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK