Karl lætur af störfum

Karl Björnsson, framkvæmdasstjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Karl Björnsson, framkvæmdasstjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ljósmynd/Samband íslenskra sveitarfélaga

Karl Björnsson hefur tilkynnt að hann muni láta af störfum sem framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 1. maí næstkomandi og fara á eftirlaun. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sambandsins.

Þar segir einnig að gert sé ráð fyrir að fljótlega verði starfið auglýst laust til umsóknar.

„Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa notið þeirrar gæfu að hafa starfað á sveitarstjórnarstiginu öll þessi ár. Ég hef haft tækifæri til að kynnast fjölda skemmtilegs og áhugaverðs fólks á starfsævinni, vinnufélagar mínir og samstarfsfólk hafa veitt mér mikla gleði og færi ég öllum viðkomandi kærar þakkir fyrir samskiptin og samstarfið.

Einnig er ég þakklátur fyrir allan þann skilning sem fjölskylda mín hefur sýnt öll þessi ár vegna þeirrar fjarveru frá heimili sem óhjákvæmilega fylgir þeim erilsömu störfum sem ég hef sinnt. Ég er þó ekki alveg hættur enn sem komið er og stefni ég að því að skila af mér góðu búi til arftaka míns þ. 1. maí nk.“, er haft eftir Karli í tilkynningunni. 

Karl tók við sem bæjarstjóri á Selfossi árið 1986, þá aðeins 29 ára að aldri, og gegndi því embætti til ársins 1998 þegar hann tók við starfi bæjarstjóra í hinu nýstofnaða sveitarfélagi Árborg. 

Árið 2002 tók hann við starfi sviðsstjóra kjarasviðs sambandsins, sem þá var nýstofnað, og sinnti því starfi þar til hann tók við sem framkvæmdastjóri sambandsins 1. september 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK