Framkvæmdastjóri Sahara lætur af störfum

Davíð Lúther Sigurðarson.
Davíð Lúther Sigurðarson.

Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Sahara, hefur látið af störfum.

Frá þessu greinir Davíð á Facebook og segir að „ferðalagi“ sínu í Sahara sé nú lokið.

„Að stofna og reka þetta skemmtilega fyrirtæki með góðum vinum og samstarfsfólki var forréttindi enda ekki þessa hefðbunda auglýsingastofa, meira svona auglýsingastofan sem getur allt,“ segir hann þar.

Góð slökun fram undan

Bætir hann við að hann kveðji stofuna afar stoltur. Stofan sé ein af þeim stærstu á landinu og muni halda áfram að vaxa.

„Magnað ævintýri undanfarin àr þar sem árleg ráðstefna, opnum útibús í Orlando, stofnun á skólanum SAHARA Academy og vöxtur á hverjum degi og margt fleira varð að veruleika enda mikill metnaður í eigendum og starfsfólki,“ skrifar Davíð.

„Nú hefst hjà mér góð slökun fyrir sál og líkama enda lítið um það undanfarin ár.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK