Íslandsbanki svarar Kviku játandi

Samruni félaganna er háður samþykki hluthafafundar beggja félaganna.
Samruni félaganna er háður samþykki hluthafafundar beggja félaganna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Íslandsbanka samþykkti í dag að hefja samrunaviðræður við Kviku banka, en Kvika óskaði sem kunnugt er eftir viðræðum við Íslandsbanka um samruna í síðustu viku.

Ef af samruna verður, mun sameinaður banki vera sá stærsti á landinu.

Í tilkynningu frá Ísalndsbanka keur fram að stjórn bankans telji að í samruna félaganna geti falist sóknar- og hagræðingartækifæri og að viðskiptavinir sameinaðs félags geti notið þess í breiðara vöruframboði, aukinni þjónustu og lægri kostnaði.

Þá kemur fram að með sameiningu myndi efnahagsreikningur Íslandsbanka stækka um tæplega 20% og tryggingarekstur Kviku auka fjölbreytni í tekjugrunni bankans.

„Telur stjórn bankans ávinning geta falist í samrunanum fyrir bæði hluthafa og viðskiptavini beggja félaga. Bankarnir tveir starfa á mikilvægum mörkuðum og leggur Íslandsbanki áherslu á að þeir viðhaldi samkeppnislegu sjálfstæði sínu á meðan ferlinu stendur. Leggur bankinn jafnframt áherslu á opin og hreinskiptin samskipti við viðeigandi eftirlitsaðila í ferlinu,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að samruni félaganna sé háður samþykki hluthafafundar beggja félaganna og viðeigandi eftirlitsaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK