Ómar Þór ráðinn til Digido

Ómar Þór Ómarsson er nýr framkvæmdastjóri vaxtar hjá Digido.
Ómar Þór Ómarsson er nýr framkvæmdastjóri vaxtar hjá Digido.

Gagnadrifna markaðsstofan Digido hefur ráðið til sín Ómar Þór Ómarsson í stöðu framkvæmdastjóra vaxtar. Í tilkynningu kemur fram að Ómar muni meðal annars leiða nýtt B2B teymi (markaðssetningu fyrirtækja til annarra fyrirtækja) með það markmið að hjálpa íslenskum fyrirtækjum með alþjóðlega stefnumótun.

Síðastliðin átta ár hefur Ómar gegnt stöðu markaðsstjóra hjá alþjóðlega fjártæknifyrirtækinu Meniga. Áður starfaði hann sem ráðgjafi á fyrirtækjasviði hjá Deloitte í Sviss og viðskiptastjóri hjá Creditinfo. Ómar er með gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og gráðu í stafrænni markaðssetningu frá Columbia Háskóla.

„Það er mikið af spennandi fyrirtækjum og hugviti að krauma á Íslandi í dag með gríðarleg tækifæri til að vaxa út fyrir landsteinana. Við Íslendingar erum rosalega öflug í að búa til frábærar vörur og ná árangri á Íslandi en mörg fyrirtæki lenda á vegg þegar þau ætla sér að vaxa erlendis. Þar skiptir öllu máli að þekkja markhópinn og hans hegðunarmynstur í smáatriðum og móta þannig úthugsaða strategíu. Enn fremur þarf að nota réttu tólin og styðjast við gögn til að keyra herferðir og taka upplýstar ákvarðanir,“ segir Ómar í tilkynningunni.

Þá kemur fram að meðal samstarfsaðila Digido séu Arion banki, Men & Mice, 50 Skills, Pay Analytics og Origo auk fjölda annarra. Hjá fyrirtækinu starfa ellefu sérfræðingar á sviði markaðs- og auglýsingaráðgjafar með áherslu á gagnadrifna markaðssetningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK