Ráðinn framkvæmdastjóri Vélfags

Reynir B. Eiríksson, nýráðinn framkvæmdastjóri Vélfags ehf.
Reynir B. Eiríksson, nýráðinn framkvæmdastjóri Vélfags ehf. Ljósmynd/Vélfag

Reynir B. Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vélfags ehf, samkvæmt tilkynningu frá félaginu.

Reynir tekur við af Bjarma Sigurgarðarssyni og Ólöfu Ýr Lárusdóttur sem verið hafa framkvæmdastjórar síðan þau stofnuðu fyrirtækið árið 1995.

Bjarmi og Ólöf hafa staðið í stafni frá upphafi og segjast ánægð á þessum tímamótum.

„Við höfum rekið fyrirtækið frá stofnun og erum mjög sátt. Það er mjög ánægjulegt að sjá á hvaða vegferð fyrirtækið er og að fá jafn öflugt fólk í framkvæmdastjórn þess og raun ber vitni. Segja má að við höfum verið vakin og sofin yfir félaginu frá fyrsta degi en nú getum við sleppt hendinni af daglegum rekstri og snúið okkur alfarið að frekari vöruþróun,“ er haft eftir þeim.

Spenn­andi tím­ar fram und­an

Reyni líst vel á verkefnið.

„Vélfag er mjög áhugavert fyrirtæki og mér þykir ánægjulegt að fá að taka þátt í frekari uppbyggingu þess. Ég hef mikla trú á félaginu, afar spennandi tímar eru framundan og ég er sannfærður um að Vélfag getur orðið gríðarlega öflugt.“

Finnbogi Baldvinsson er stjórnarformaður Vélfags.

„Vélfag er öflugt fyrirtæki sem hefur mikla möguleika til vaxtar. Það skref sem er stigið með ráðningu í helstu stjórnunarstöður styrkir félagið verulega,“ segir Finnbogi.

„Að mínu viti er Vélfag vel geymt leyndarmál á Eyjafjarðarsvæðinu. Þar hefur verið unnin mjög mikil þróunarvinna sem ekki hefur farið hátt. Stoðir fyrirtækisins eru orðnar mjög sterkar sem er nauðsynlegt á þeim spennandi tímum sem framundan eru.“

Vélfag hefur frá stofnun þjónustað fyrirtæki í sjávarútvegi en fljótlega hófu starfsmenn fyrirtækisins að þróa og framleiða vélar fyrir fiskvinnslu.

Breyting hefur einnig verið gerð á framkvæmdastjórn félagsins en í henni verða auk Reynis, Bjarmi Sigurgarðarsson þróunarstjóri, Sigrún Á. Sigmundsdóttir fjármálastjóri, Reimar Viðarsson þjónustustjóri og Ragnar Guðmundsson sölustjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK