Ragnar og Halla til Fossa

Halla Sigrún og Ragnar Þórarinn.
Halla Sigrún og Ragnar Þórarinn. Ljósmynd/Aðsend

Fossar fjárfestingarbanki hefur ráðið til sín Ragnar Þórarin Ágústsson sem forstöðumann upplýsingatæknisviðs og Höllu Sigrúnu Mathiesen í teymi fyrirtækjaráðgjafar bankans.

Ragnar Þórarinn hefur yfir 17 ára alþjóðlega reynslu af hugbúnaðartækni í fjárfestingarbankastarfsemi og stýringu. Áður en hann gekk til liðs við Fossa vann hann frá árinu 2014 fyrir Landsbankann sem sérfræðingur, deildarstjóri hugbúnaðarþróunar og svo sem teymisstjóri UT Fjármála og Markaða, að því er kemur fram í tilkynningu.

Áður, á árunum 2003-2014, vann Ragnar í London á upplýsingatæknisviði fjárfestingabanka og sjóðastýringar, sem sérfræðingur hjá HSBC fjárfestingarbanka, yfirmaður hugbúnaðarþróunar hjá Landsbankanum í London, yfirmaður UT hjá Man Group FoF og Man Group GLG Partners. Fyrir árin í London var Ragnar meðal annars meðstofnandi Eskils-hugbúnaðarhúss.  Ragnar er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.

Halla Sigrún kemur til Fossa fjárfestingarbanka frá Arion banka þar sem hún hefur frá árinu 2018 starfað við fjármögnun fyrirtækja og ráðgjöf. Halla Sigrún hóf feril sinn í rekstri á fyrirtækjasviði áður en hún tók við stöðu viðskiptastjóra á sama sviði. Frá árinu 2020 hefur hún starfað í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Halla Sigrún hefur lokið BA gráðu í hagfræði, stjórnmálafræði og sögu frá University College London (UCL) og prófi í verðbréfaviðskiptum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK