Skeljungur kaupir Klett - Kristján verður forstjóri

Skeljungur hefur keypt Klett
Skeljungur hefur keypt Klett Ljósmynd/Aðsend

Skeljungur hefur formlega gengið frá kaupum á Kletti og mun Kristján Már Atlason taka við sem forstjóri félagsins. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skeljungi. Þar segir jafnframt að SKEL taki yfir Klettagarða 8-10 ehf sem er félagið sem rekur og á húsnæði sem hýsir hluta af starfsemi Kletts.  

Rótgróið fyrirtæki 

„Klettur er rótgróið sölu- og þjónustufyrirtæki sem byggt er upp utan um alþjóðleg vörumerki á sviði vinnuvéla, vörubíla, hópbifreiða, tækja, skipavéla, varaaflsstöðva og hjólbarða. Klettur er umboðsaðili Scania, Caterpillar, Ingersoll Rand, Goodyear, Hankook og Nexen á Íslandi auk ýmissa annarra vörumerkja. Klettur rekur þjónustuverkstæði í Reykjavík og á Akureyri. Þá er félagið einn stærsti söluaðili hjólbarða á Íslandi og starfrækir hjólbarðaverkstæði undir nafni Kletts ásamt því að eiga vörumerkið Sólningu og eru fjögur sjálfstæð verkstæði rekin undir nafni þess. Hjá félaginu starfa 115 manns.

Undirrituðu kaupsamning í október 

Félögin undirrituðu kaupsamning í október síðastliðnum með fyrirvörum um samþykki helstu birgja félagsins ásamt samþykki Samkeppniseftirlitsins. Um miðjan janúar lágu fyrir samþykki allra aðila og féll kaupandi þar með frá öllum fyrirvörum. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi seljanda í viðskiptunum en LEX lögmannsstofa var ráðgjafi SKEL og Skeljungs,“ segir í tilkynningu. 

Knútur verður stjórnarformaður 

„Árið 2022 var besta rekstrarár félagsins, bæði með tilliti til sölu og afkomu. Áætlanir gera ráð fyrir að árið 2023 verði enn betra enda eru fyrirliggjandi pantanir og verkefnastaða betri en nokkru sinni. Knútur Grétar Hauksson, núverandi forstjóri og stærsti eigandi Kletts, fer út úr eigendahópnum en verður stjórnarformaður félagsins. Bjarni Arnarsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, Sveinn Símonarson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs, og Kristján Már verða í nýjum hluthafahópi. Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, mun starfa áfram með nýjum eigendum. Kristján Már Atlason, forstjóri Kletts:

„Það eru mjög spennandi og metnaðarfull áform framundan hjá Kletti. Við ætlum okkur að halda uppbyggingu félagsins áfram á komandi árum og ná fram frekari vexti. Við munum skoða ýmsar leiðir til þess að útvíkka starfsemina og þjónustunetið. Við erum bjartsýn á íslenskan efnahag á næstu árum og gerum ráð fyrir að styðja áfram vel við uppbyggingu innviða hérlendis með okkar þjónustu. Það eru mikilvæg verkefni á dagskrá sem snúa meðal annars að orkuskiptum og aukinni stafrænni þjónustu eða sjálfvirknivæðingu við viðskiptavini okkar í samstarfi við okkar öflugu birgja,“ segir Kristján í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK