Frakkar kaupa 50% í vetnisfélagi Orkunnar

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar, Guðmundur Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins, …
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar, Guðmundur Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins, Tryggvi Þór Herbertsson, framkvæmdastjóri vetnisþróunarviðskipta hjá Qair Group og Guðlaugur Þór Þórðarsson, ráðherra umhverfis- orku- og loftslagsmála.

Franska fyrirtækið Qair hefur keypt 50% hlut Orkunnar í Íslenska vetnisfélaginu. Hugmyndin er að byggja upp vetnisstöðvar hringinn í kringum Ísland. Íslenska vetnisfélagið er dótturfélag Orkunnar. Vetnisframleiðsla mun fara fram á Grundartanga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkunni. 

Eina fyrirtækið sem býður upp á vetni 

„Orkan selur 50% hlut í Íslenska vetnisfélaginu til franska fyrirtækisins Qair. Saman ætla fyrirtækin að taka þátt í uppbyggingu á vetnisstöðvum hringinn í kringum Ísland. Íslenska vetnisfélagið er dótturfyrirtæki Orkunnar og rekur í dag tvær vetnisstöðvar, á Vesturlandsvegi og í Fitjum, Reykjanesbæ. Orkan er eina eldsneytisfyrirtækið sem býður viðskiptavinum vetni. Á næstu árum verða fjórar nýjar vetnisstöðvar teknar í notkun, þær fyrstu í Reykjavík og á Akureyri, næsta stöð þar á eftir er fyrirhuguð á Egilsstöðum og að lokum á Freysnesi. Óhætt er því að segja að orkuskiptin snúi ekki einungis að rafmagni en árið 2026 verður hægt að keyra kolefnishlutlaust hringveginn á vetnisbíl,“ segir í tilkynningu.   

30  vetnisbílar á suðvesturhorninu 

„Fyrsta vetnisstöðin á Íslandi, sem var jafnframt sú fyrsta í heiminum til að selja vetni á neytendamarkaði, var tekin í notkun árið 2003 og eru um 30 vetnisbílar á suðvesturhorninu í dag. Drægni vetnisbíla er umtalsvert meiri en rafmagnsbíla ásamt því sem engin rafhlaða er sem þyngir bílana er í þeim. Vetnisbílar skila frá sér vatni og eru því kolefnishlutlausir og mikilvægur hlekkur í að draga úr kolefnisfótspori samganga í landinu. Mikill áhugi er fyrir þessum græna valmöguleika, sérstaklega þegar kemur að þungaflutningum þar sem ökutækin munu draga verulega úr kolefnisspori og er því áætlað að vetnisbílum fjölgi hratt þegar innviðir styrkjast, bæði fólksbílar og flutningabílar,“ segir í tilkynningu.  

Vetnisframleiðsla á Grundartanga 

„Þessi metnaðarfulla uppbygging mun geta valdið straumhvörfum í orkuskiptum í innanlandssamgöngum. Vetnisinnviðir eru forsenda þess að neytendur og fyrirtæki telji raunhæft að fjárfesta í vetnisbílum,” segir Guðmundur Ingi, framkvæmdastjóri ÍV.

„Fyrirtæki eru stöðugt að leita leiða til að draga úr kolefnisspori og með mest 380 km milli vetnisstöðva verður hægt að búa til forsendur fyrir því að loka hringveginum og færa vöruflutninga yfir á kolefnishlutlausa orkugjafa. ÍV er gríðarlega spennt fyrir orkuskiptunum sem framundan eru og að taka þátt í uppbyggingunni á grænum valkostum fyrir neytendur,” bætir hann við.  

Samhliða er búið að tryggja landsvæði á Grundartanga þar sem Íslenska vetnisfélagið mun byggja vetnisframleiðslu í þeim tilgangi að þjónusta vetnisinnviði með sem bestum hætti,“ segir í tilkynningu.   

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK