Íslendingar flúðu land og ferðamenn eyddu meiru

Íslendingar slógu eigið met í brottförum.
Íslendingar slógu eigið met í brottförum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikill fjöldi ferðamanna flaug á brott frá Keflavíkurflugvelli í nýliðnum janúarmánuði. Það eru þó ekki ferðamennirnir sem slá brottfaramet að þessu sinni heldur Íslendingar.

Brottfarir Íslendinga voru í janúar 41.500 talsins en fyrra met var 40.600 og hafði staðið frá 2019. Það virðist því vera að ferðaþorsta landans eftir kórónaveirufaraldurinn hafi ekki enn verið svalað.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem rýnir í tölur Ferðamálastofu.

Brottfarir erlendra ferðamanna eru sagðar nokkurn veginn á pari við janúarmánuð ársins 2019, áður en faraldurinn skall á. Bretar og Bandaríkjamenn eiga tæplega helming brottfara erlendra ferðamanna í janúar eða 58 þúsund af 121 þúsund.

Þrátt fyrir að brottförum erlendra ferðamanna í janúar hafi ekki fjölgað frá því 2019 eyða þeir nú meiru en áður hér á landi,

Kortaveltan nam 16,7 milljörðum króna í mánuðinum sem um ræðir sem er 117 prósent meira en á sama tíma árið 2022 og 8 prósent meira en 2020. Þá var kortaveltan jafn mikil og í janúar 2019 þrátt fyrir færri ferðamenn.

Ferðamenn greiddu rúmlega fjóra milljarða í gistiþjónustu í janúar, 2,5 milljarða í verslun og annað eins í veitingaþjónustu. Þá fóru tæplega tveir milljarðar í bílaleigu og rúmlega hálfur milljarður í menningu, tómstundir og afþreyingu en fjárhæðir þessar voru greiddar með greiðslukortum.

Útreikningar þessir eru allir gerðir á föstu gengi en með föstu gengi er átt við að ferðamenn séu að eyða meira í eigin mynt.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jó­hann­es Þór Skúla­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferðaþjón­ust­unn­ar, seg­ir ánægju­legt að sjá ferðamanna­straum­inn yfir vetr­ar­tím­ann kom­ast í eðli­legt horf.

„Þetta er svona það sem við, fyr­ir far­ald­ur, kölluðum „eðli­lega vetr­ar­ferðamennsku“, þar sem þessi þrjú þjóðerni raða sér frek­ar of­ar­lega,“ seg­ir Jó­hann­es.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK