Þröstur stýrir eignasviði SDR og Naustavarar

Þröstur V. Söring.
Þröstur V. Söring. Ljósmynd/Aðsend

Þröstur V. Söring hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignasviðs Sjómannadagsráðs og Naustavarar og tók hann til starfa um áramótin.

Í fréttatilkynningu segir að fasteignir í eigu SDR telji um 100.000 fermetra og fyrirhugaðar séu umtalsverðar framkvæmdir á næstu misserum og árum, m.a. vegna stækkunar Hrafnistuheimila og byggingar leiguíbúða fyrir 60 ára og eldri á vegum Naustavarar. „Spurn eftir þeim íbúðum, sem ávallt eru staðsettar í nágrenni og tengslum við hjúkrunarheimili Hrafnistu, hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum. Auk núverandi reksturs yfir 250 slíkra íbúða er um þessar mundir unnið að byggingu tæplega 100 íbúða til viðbótar,“ segir í tilkynningunni. 

Kemur frá Framkvæmdasýslunni

Þröstur hefur á síðustu árum verið framkvæmdastjóri Þróunar og framkvæmda hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum. Áður starfaði hann hjá Isavia sem framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs Keflavíkurflugvallar og bar þar m.a. ábyrgð á rekstri flugvallarins, öryggisdeildar, flugturns, og farþegaþjónustu. 

Þröstur segist í tilkynningunni hafa eins og margir aðrir lengi dáðst að því hvað Sjómannadagsráð hefur staðið vel að öllum sínum rekstri, þjónustu og uppbyggingu í þágu eldra fólks. „Starfsemi og áframhaldandi uppbygging Naustavarar með leiguíbúðir fyrir eldra fólk í nálægð við þjónustukjarna hjúkrunarheimilanna er bæði stórt verkefni í eignastýringu og nýframkvæmdum. Ég hlakka til samstarfs við það úrvalsfólk sem hér er í því mikilvæga hlutverki sem SDR og Naustavör gegna,“ segir Þröstur.

Aríel Pétursson, formaður SDR.
Aríel Pétursson, formaður SDR.

Umfram það sem fyrirhugað var

Aríel Pétursson, formaður stjórnar SDR, segist í tilkynningunni vænta mikils af Þresti. „Ég býð Þröst hjartanlega velkominn til starfa og vænti mikils af reynslu hans og þekkingu í þeim viðamiklu verkefnum sem eignasvið SDR og Naustavör takast á við alla daga. Í yfir 80 ára sögu Sjómannadagsráðs hefur starfsemin vaxið langt umfram það sem fyrirhugað var í upphafi og ljóst er að ekkert lát verður á víðtækri áframhaldandi uppbyggingu. Þröstur kemur til okkar með mikla þekkingu og reynslu í farteskinu sem við munum án efa njóta góðs af.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK