Heiðrún til Fossa

Heiðrún Haraldsdóttir lýkur störfum hjá Arion Banka og gengur til …
Heiðrún Haraldsdóttir lýkur störfum hjá Arion Banka og gengur til liðs við Fossa.

Fossar fjárfestingabanki hefur ráðið Heiðrúnu Haraldsdóttur í starf forstöðumanns á rekstrarsviði.

Heiðrún hefur unnið í fjármálastarfsemi í yfir tuttugu ár. Áður starfaði hún hjá Arion banka sem rekstrarstjóri fyrirtækja- og fjárfestingabankasviðs. Þar hefur hún einnig verið á fjármálasviði.

Hún hefur einnig starfað sem sérfræðingur hjá Íslandsbanka, rekstrarstjóri hjá Senu og fjármálastjóri hjá Hér & Nú.

Fossar er fjárfestingabanki sem var stofnaður árið 2015 og þjónustar fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK