Sex vilja í sæti varaseðlabankastjóra

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Golli

Alls bárust sex umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits, en staðan var auglýst í byrjun febrúar og rann umsóknarfrestur út 27. febrúar.

Umsækjendur um embættið eru:

  • Ásgeir B. Torfason, verkefnisstjóri
  • Björk Sigurgísladóttir, framkvæmdastjóri
  • Gísli Óttarsson, framkvæmdastjóri
  • Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri
  • Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri
  • Sigurður Erlingsson, fv. forstjóri

Forsætisráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.

Í tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins kemur fram að þriggja manna hæfnisnefnd sem fjármála- og efnahagsráðherra skipar mun fara yfir umsóknir og meta hæfni umsækjenda. Einn nefndarmanna skal skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabankans en formaður er skipaður án tilnefningar.

Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits. mbl.is/Eggert Jóhannesson



Unn­ur Gunn­ars­dótt­ir hefur verið vara­seðlabanka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits Seðlabank­ans, en í janúar var greint frá því að hún hefði beðist lausnar frá embætti. Hún mun láta af störf­um í byrj­un maí. Hún hef­ur gegnt starf­inu í 11 ár, fyrst sem for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins frá 2012. Í samtali við Morgunblaðið sagðist hún telja tíma­bært að láta starfið í hend­urn­ar á öðrum enda telji hún 10-12 vera hæfi­leg­an tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK