Hætta við flug til Akureyrar og Egilsstaða

Condor hættir við áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða í sumar. …
Condor hættir við áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða í sumar. Mynd frá Akureyrarflugvelli. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Flugfélagið Condor hefur tilkynnt að hætt hafi verið við áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða frá Frankfurt sem hefjast átti um miðjan maí og standa fram í október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia innanlandsflugvöllum, dótturfélagi Isavia.

Mikil undirbúningsvinna hefur verið unnin í tengslum við flugið af hálfu heimamanna og Condor og stefnt er að því að nýta þann undirbúning fyrir árið 2024 en það skýrist á næstu vikum.

„Því miður gekk verkefnið með Condor ekki upp í ár en við bindum vonir við að af millilandaflugi milli Þýskalands og Norður- og Austurlands verði árið 2024. Það eru margir þættir sem leiddu til þessar niðurstöðu. Markaðssetningin erlendis hófst ekki nógu snemma til að ná flugi fyrir árið í ár og breyttar markaðsforsendur áttu einnig sinn þátt í að svona fór. Áhugi flugfélaga á millilandaflugi til Norður- og Austurlands fer stöðugt vaxandi, við finnum það mjög sterkt á ferðakaupstefnum og vinnustofum erlendis,” segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla.

Hefðu viljað lengri fyrirvara

Tilkynnt var um áform Condor í júlí í fyrra. Að þeirra mati hefði fyrirvarinn þurft að vera enn lengri til að tryggja betur bókanir frá ferðaskrifstofum.

„Reynslan sýnir að þetta er langhlaup og flugfélög eru varkár í sínum ákvörðunum um nýja áfangastaði og flugleiðir og það þarf töluvert úthald til að láta hlutina ganga upp. Það er afar mikilvægt að halda áfram að bjóða upp á aðgengi að landinu í gegnum nýjar gáttir í takti við stefnu stjórnvalda um að efla ferðaþjónustu í öllum landshlutum. Það verður áfram helsta markmið okkar og sem fyrr segir er áhuginn greinilega til staðar. Framboð á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll hefur aldrei verið meira og ferðaskrifstofur sem bjóða ferðir þangað hafa verið að fjölga ferðum, svo dæmi sé tekið.“ segir Sigrún Björk.

„Við höfum heyrt frá Condor að þau hafi fulla trú á áfangastöðum á Íslandi, sér í lagi á Austur- og Norðurlandi. Rannsóknir Ferðamálastofu sýna að ferðamenn sem hingað koma hafa mikinn áhuga á að heimsækja landið aftur og skoða þá nýja landshluta og þýski markaðurinn hefur verið einn af lykilmörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu,“ segir Sigrún Björk að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK