24. nóvember 2011
Ísland allt árið - Bjóðum heim!
Í kjölfar vel lukkaðs markaðsátaks, Inspired By Iceland ákvað ríkistjórnin að setja af stað þriggja ára verkefni: Ísland allt árið. Ólíkt Inspired By Iceland er markmið hins nýja átaks að jafna út árstíðarsveiflur í ferðaþjónustunni en helmingur af öllum Íslandsförum koma í júní, júlí eða ágúst. Með því að jafna út sveiflurnar verður hægt að skapa fleiri störf og auka arðsemi ferðaþjónustunnar svo um munar. Ríkið leggur til 300 milljónir króna á ári til verkefnisins en aðrar 300 milljónir koma frá einkaaðilum en um 130 samstarfsaðilar koma í dag að verkefninu.
Markmið nýju herferðarinnar eru þrjú:
- Styrkja ímynd Íslands sem áfangastað ferðamanna allt árið um kring.
- Fjölga ferðamönnum utan háannar um 100.000 frá september 2011 til maí 2014 (12% á ári).
- Auka verslun erlendra ferðamanna svo endurgreiðsla af VSK til ferðamanna utan háannar aukist úr 560 milljónum í 800 milljónir á tímabilinu.
Ísland allt árið markaðsátakið byggir á grunni Inspired by Iceland en verkefnið fer í útboð sem lýkur á næstu vikum. Til áramóta munu sömu aðilar og komu að fyrri herferðinni fara fyrir markaðsátakinu. Herferðinni er beint að neytendamarkaði í Amsterdam, Seattle, London og París. Í borgunum fjórum eru jafnframt birtar prent-, umhverfis- og vefauglýsingar. Markhópurinn er fólk sem vill sækja heim óhefðbundna áfangastaði sem bjóða einstaka upplifun sem ekki er allra að heimsækja.
Unnið er að markhópagreiningu til að undirbúa herferðina. Rannsóknir hafa verið gerðar á lykilmörkuðum sem hafa gefið af sér vel skilgreindan markhóp. Um er að ræða hinn upplýsta ferðamann sem vill kynnast öðruvísi menningu og finnst norður Evrópa áhugaverður kostur auk þess að fylgja ekki hjörðinni við val á áfangastöðum. Hópurinn hefur jafnframt áhuga á að sækja kaldari staði og upplifa eitthvað einstakt. Lífsstílsnálgun var notuð við markhópagreininguna en með því að ná góðri mynd af Íslandsförum á þennan hátt er hægt að keyra saman lífsstílsbreyturnar við lífsstíls- og neyslukannanir á þeim mörkuðum sem herjað er á. Með því fæst mikil vitneskja um lífstíl hópsins, miðlanotkun, áhugamál og þá hvata sem liggja að baki ákvörðun um áfangastað. Þekkingin verður svo til þess að auðveldara verður að velja skilaboð sem henta þessum hópi og miðla þeim í rétta átt.
Hugmyndin að baki átaksins nú er að fá Íslendinga til að bjóða útlendingum heim. Ferðamenn fá því að upplifa að vera Íslendingar. Margir Íslendingar hafa sýnt átakinu áhuga með því að skrá heimboð á www.inspiredbyiceland.is. Hluti af heimsóknunum eru svo myndaðar og efninu miðlað á netinu svo markhópurinn fái tækifæri til að sjá hvað landið hefur upp á að bjóða utan háanna tíma. Efni frá þátttakendunum sjálfum er einnig dreift á sama hátt. Heimboðin passa því vel við þann markhóp sem orðið hefur fyrir valinu. Forseti Íslands hefur boðið í pönnukökur, Jón Gnarr í íslenskt sushi í Höfða, Katrín Júlíusdóttir í fótabað á Seltjarnarnesi og Arnar Gauti í persónulegt búðarráp í Reykjavík.
Almannatengslaskrifstofa verkefnisins í London miðlar svo myndböndum af heimboðunum á fréttasíður og samfélagsmiðla á þeim mörkuðum sem herferðin beinist að. Hver vika til áramóta verður þematengd. Unnið er efni tengt þemanu hverju sinni, t.d náttúra, heilsulindir og vellíðan, en efninu er síðan miðlað á valdar vefsíður m.t.t. markhópsins. Þessi óvenjulegu heimboð hafa vakið mikla athygli og hafa stærstu fréttamiðlar heims þegar sýnt átakinu áhuga. Þar á meðal eru BBC news, CNBC, CNN og Huffington Post svo örfáir séu nefndir.
Í hugum Íslendinga hljóma 600 milljónir króna árlega eins og há upphæð. Hinsvegar er ljóst að upphæðin reynist ekki svo há þegar fjármagninu hefur verið skipt milli þeirra stóru borga sem átakið beinist að, þar sem markaðssamskipti eru dýr og samkeppnin um athygli mikil. Var það því lykilatriði að herferðin væri öðruvísi og óhefðbundin, með mikla áherslu á internetið. Markhópurinn vill sjálfur standa út úr og fara á móti hjörðinni en því var afar mikilvægt að efni herferðarinnar yrði sniðið að honum til að fanga athygli hans. Internetið er hér í lykilhlutverki því markhópurinn ákveður yfirleitt áfangastaði eftir að hafa leitað að upplýsingum og lesið umsagnir á netinu.
Árangur átaksins verður ekki metinn fyrr en eftir áramót en nú þegar hefur tekist að skapa ákveðna stemningu meðal Íslendinga sem stuðlar að þeirri ímynd að Ísland sé gott að sækja heim allt árið. Á fyrstu tveimur vikum átaksins í Október tókst að miðla efni og fá umfjallanir sem birtar voru 128 milljón sinnum (e. Impressions) en áætlað virði af áreitinu hleypur á milljónum punda. Greiningartól á netinu hafa í kjölfarið sýnt fram á aukna umræðu um Ísland á jákvæðan hátt. Ofan á árangur í miðlun efnis á netinu bætist svo sú dekkun og áhrif sem hefðbundnar auglýsingar hafa skilað.
Guðmundur Arnar Guðmundsson er stjórnarformaður Ímark og annar höfundur bókarinnar Markaðssetning á netinu. Greinaröð Morgunblaðsins og MBL.IS um markaðsmál er styrkt af Íslandsbanka og Nordic eMarketing.





Guðmundur Arnar Guðmundsson er framkvæmdastjóri markaðssviðs WOW air, stjórnarformaður Ímark og annar höfundur bókarinnar Markaðssetning á netinu. Greinaröð Morgunblaðsins um markaðsmál er styrkt af Íslandsbanka og Nordic eMarketing