c

Pistlar:

30. maí 2017 kl. 14:18

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Ísland best í heimi

Þegar Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, boðaði til kosninga árið 2015 hafði hann á orði að Danmörk væri besta land í heimi. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar gerði engan ágreining um það. Danmörk væri svo sannarlega besta land í heimi - en bætti við af varúð stjórnarandstöðunnar, að það gæti orðið enn betra.

Samanburður milli ólíkra samfélaga verður alltaf erfiður og er reyndar eitt helsta aðferðarfræðilegt vandamál margra alþjóðlegra stofnanna, að finna og meðhöndla gögn þannig að þau gefi marktækan samanburð. Þetta er öllum nauðsynlegt að hafa í huga, hvort sem menn ætla að upphefja Ísland eða draga það niður.

En að því sögðu! Á þessum vettvangi hefur í gegnum tíðina verið fjallað um samburð og reynt að draga saman margvíslega mælikvarða, síðast í ágúst á síðasta ári. Hér verður gerð enn ein tilraun til að uppfæra þessa upptalninguna og rakin þau tilvik, sem hafa annað hvort bæst við eða önnur þau sem hafa endurnýjast á einhvern hátt. Samantektinni er ætlað að útlista röðun Íslands eins og hún er í dag og er hér sem áður að mestu stuðst við upplýsingar sem hafa birst í íslenskum fjölmiðlum undanfarin misseri. heiklbrkerfi

Gott heilbrigðiskerfi og lægstur ungbarnadauði

Í nýrri grein í Lancet-tímaritinu, einu virtasta og elsta læknatímariti heims, er dregin upp nokkuð björt mynd af stöðu íslenska heilbrigðiskerfisins gagnvart öðrum en Ísland er þar í öðru sæti, næst á eftir örríkinu Andorra. Um er að ræða út­reikn­ing á heil­brigðis­vísi­tölu sem er reiknuð út frá aðgengi og gæðum heil­brigðisþjón­ustu með til­liti til dán­artíðni af viðráðan­leg­um sjúk­dóm­um. Ísland sit­ur í öðru sæti í niður­stöðum rann­sókn­ar­inn­ar með heil­brigðis­vísi­töl­una 94 af 100 mögu­leg­um. Gildin eru reiknuð fyrir tímabilið 1990 til 2015 en á tímabilinu fer nánast öllum löndum heimsins fram.

Þetta kemur ágætlega heim og saman við nýjar tölur Hagstofunnar sem upplýsti að lífs­lík­ur Íslend­inga eru með þeim hæstu í Evr­ópu og ung­barnadauði í Evr­ópu er lægst­ur á Íslandi. Árið 2016 var meðalævi­lengd karla 80,7 ár og meðalævi­lengd kvenna 83,7 ár á Íslandi.

Þá reyndust Íslendingar vera í 2. sæti yfir heilbrigðustu þjóðir heims samkvæmt lista Bloomberg Global Health Index sem birtist í mars síðastliðnum.

Sömuleiðis er freistandi að geta hér rannsóknar sem sagt var frá í British Journal of Sports Medicine í september á síðasta ári. Kanadamaðurinn Justin Lang og samstarfsmenn hans greindu hvernig börn á aldrinum níu til sautján ára frá fimmtíu löndum stóðu sig í svokölluðu píp-testi, þar sem hlaupin er tuttugu metra leið, eins oft og mögulegt er og þar sem tíminn sem gefst til að hlaupa hverja ferð styttist reglulega þegar líður á prófið. Niðurstöður alls 1,1 milljón barna voru rannsakaðar. Börn frá Tansaníu, Íslandi, Eistlandi, Noregi og Japan komu best út í rannsókninni, en börn frá Mexíkó, Perú, Lettlandi og Bandaríkjunum verst. Aðeins börn í Tansaníu komu betur út í píp-testinu en þau íslensku.

Lífsgæði að aukast og hamingjan mikil

Þá virðast almennt lífsgæði vera að aukast og kemur sjálfsagt ýmsum á óvart. Ísland er í níunda sæti á lífsgæðalista Sameinuðu þjóðanna og hækkar um sjö sæti á lista yfir þau ríki þar sem lífsgæði eru best í heiminum að því er fram kemur í skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar birtu í mars síðastliðnum. Síðast var Ísland númer 16. Tiltölulega óvenjulegt er að ríki stökkvi upp um jafnmörg sæti og raunin er með Ísland að þessu sinni.

Norðmenn eru ham­ingju­sam­ast­ir allra í heimi sam­kvæmt nýrri ham­ingju­vísi­tölu Sam­einuðu þjóðanna. Íslend­ing­ar skipa þriðja sæti list­ans en Dan­ir eru í öðru sæti. Norðmenn skipuðu fjórða sætið á list­an­um í fyrra en Sviss­lend­ing­ar eru í því sæti í ár. Meðal atriða sem horft er til eru frelsi, heilsa, tekj­ur og góð stjórn­sýsla. Finn­ar eru í fimmta sæti list­ans í ár. 

Ísland hækkar mest þegar kemur að jöfnuði

Ísland er í fjórða sæti lista Alþjóðaefna­hags­ráðsins (World Economic For­um) yfir lönd með mest­an jöfnuð. Ísland er jafn­framt það land sem hef­ur hækkað mest á list­an­um und­an­far­in fimm ár sam­kvæmt sam­an­tekt ráðsins, ásamt Ísra­el og Nýja-Sjálandi.

Norður­lönd­in eru að venju áber­andi á list­an­um en Nor­eg­ur trón­ir á toppn­um með sín „háu lífs­gæði, ár­ang­urs­ríkt vel­ferðar­kerfi og lág­an ójöfnuð,“ eins og seg­ir í sam­an­tekt­inni. Þá er talað um sterk­an fé­lags­leg­an hreyf­an­leika, lít­il at­vinnu­leysi og hátt hlut­fall kvenna á vinnu­markaðinum.

Lúx­em­borg og Sviss eru í öðru og þriðja sæti en Ísland því fjórða eins og fyrr seg­ir. Þar á eft­ir koma Dan­mörk, Svíþjóð og Hol­land og svo eru Nýja-Sjá­land og Ástr­al­ía í átt­unda og ní­unda sæti. Aust­ur­ríki er síðan í því tí­unda.

Þegar að skýrsl­an er skoðuð nán­ar má sjá að á Íslandi er at­vinnu­leysi minnst hjá lönd­un­um 30 sem fjallað er um í skýrsl­unni og þá er sömuleiðis fá­tækt minnst hér á landi. Þegar kem­ur að aðgengi að mennt­un er Ísland í 17. sæti en því sjö­unda þegar litið er að gæði mennt­un­ar­inn­ar. Þá eru Íslend­ing­ar í 23. sæti þegar litið er á fram­leiðni.fánahonor

Öruggt land og ferðaþjónustan blómstrar

Ísland er öruggasta land í heimi samkvæmt úttekt Global Peace Index. Danir eru í 2. sæti, þá Austurríki, Nýja Sjáland og Portúgal. Finnar eru í 11. sæti, Svíar í 14. sæti og Norðmenn í 17. sæti.

Ísland hafnaði í öðru sæti yfir þau Evr­ópu­lönd sem les­end­ur breska blaðsins The Tel­egraph njóta helst að sækja heim. 75.000 les­end­ur tóku þátt í því að velja upp­á­halds­landið sitt á síðasta ári. „Þetta er góð frammistaða miðað við land sem fyr­ir stuttu var varla á „ferðakort­inu,““ seg­ir meðal ann­ars í um­fjöll­un um Ísland.

Ísland er í 25. sæti af 136 löndum í ár yfir samkeppnishæfustu lönd heims m.t.t. ferðaþjónustu. Eru þetta niðurstöður World Economic Forum (WEF) í skýrslu sem birt var í apríl. Lækkar landið um 7. sæti á listanum frá 2015 þegar stofnunin birti síðast niðurstöður viðlíka könnunar. Líkt og á árinu 2015 eru Spánn, Frakkland og Þýskaland í þrem efstu sætum listans.

Ísland er í fimmta sæti yfir þau lönd sem háðust eru ferðaþjón­ust­unni sam­kvæmt út­tekt How Much. Malta er í fyrsta sæti, Króatía í öðru, Taí­land í þriðja og Jamaíka í fjórða. Í út­tekt­inni seg­ir að fá­tækt eða lítið efna­hags­kerfi ein­kenni helst lönd­in sem efst eru á blaði. Í út­tekt How Much er litið til ferðaþjón­ustu sem hlut­falls af vergri lands­fram­leiðslu og tekið er mið af ár­inu 2015 þar sem hlut­ur­inn nam um 8,2% á Íslandi. Þetta hlut­fall hef­ur vaxið hratt á liðnum árum og var það um 10% í fyrra. Að því gefnu að ferðaþjón­ust­an hafi ekki vaxið eins hratt í öðrum lönd­um á sama lista ætti Ísland því að vera ofar á blaði.

En það er ekki bara að Ísland sé vinsælt ferðamannaland. Ísland er vinsælasti áfangastaður þeirra sem vilja flytja sig um set vegna stjórnmálaskoðana sinna eða samfélagsviðhorfs.

Vefurinn Movehub, sem aðstoðar fólk við að flytja á milli landa, hefur merkt mikla aukningu, sér í lagi frá Bretum og Bandaríkjamönnum sem voru tilbúnir að hugsa sér til hreyfings og var óvæntum kosningaúrslitum kennt um að því er sagði í frétt RÚV um málið. Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Bretlandi um úrsögn Breta úr Evrópusambandinu og kosningasigur Donalds Trump voru talin hafa ýtt við mörgum sem eru ósáttir við úrslitin og samsama sig ekki með samborgurum sínum. Norðurlöndin þykja ákjósanlegustu áfangastaðirnir þegar fólk leitast eftir auknu frelsi og framsæknum stjórnmálaskoðunum. Þar er Ísland efst en Finnland, Svíþjóð, Noregur og Nýja-Sjáland eru í sætunum þar fyrir neðan.

Annað mesta upplýsingasamfélagið

Ísland er í næst efsta sæti á lista Alþjóðafjar­skipta­sam­bands­ins um stöðu og þróun upp­lýs­inga­sam­fé­lags­ins. Suður-Kórea trón­ir á toppn­um en Ísland skýt­ur sér upp fyr­ir Dan­mörku. Á meðal þess sem litið er til er fjöldi net­not­enda, farsíma­áskrifta og mennt­un­arstigs.

Alþjóðafjar­skipta­sam­bandið fylg­ist með stöðu og þróun fjar­skipta í ríkj­um heims. Frá 2009 hef­ur verið gef­in út ár­leg skýrsla þar sem met­in er staða upp­lýs­inga­sam­fé­lags­ins í ríkj­um heims. Nýj­asta skýrsl­an, Mea­sur­ing the In­formati­on Society Report, kom út þann 22. nóv­em­ber sl. Þar er ríkj­um raðað á lista eft­ir ein­kun­um og niður­stöðum samkvæmt mæli­kvörðum sem notaðir eru til að mæla stöðu og þróun upp­lýs­inga­sam­fé­lags­ins, að því er kem­ur fram í frétt á vef Póst- og fjar­skipta­stofn­un­ar.

Einnig er birt­ur listi með heild­ar­ein­kunn­um ríkja, svo­kallaður IDI-listi (ICT Develop­ment Index). Þar er 175 ríkj­um um all­an heim raðað í ein­kunnaröð og borið er sam­an við niður­stöður frá síðasta ári. Gefn­ar eru ein­kunn­ir fyr­ir fjölda net­not­enda, heim­ila með tölv­ur, mennt­un, net- og farsíma­áskrift­ir svo eitt­hvað sé nefnt. Ísland er nú næst efst á þess­um heild­ar­ein­kunna­lista, hef­ur skot­ist upp fyr­ir Dan­mörku sem nú er kom­in úr öðru í þriðja sætið. Efst á list­an­um er Suður-Kórea eins og áður sagði. Heild­arniður­stöðurn­ar sýna stöðuga þróun upp­lýs­inga­sam­fé­lags­ins í öll­um lönd­un­um á list­an­um, en mik­ill mun­ur er þó bæði milli ríkja og svæða í heim­in­um. Öll Norður­lönd­in eru á lista tutt­ugu efstu ríkj­anna

Lakari á regnbogakortinu en hærri á fjölmiðlafrelsinu

Fyrir skömmu var upplýst að Ísland upp­fyll­ir ein­göngu 47% skil­yrða Regn­boga­korts bar­áttu­sam­tak­anna ILGA-Europe, sam­an­borið við 59% árið 2016. Kortið gef­ur til kynna stöðu ríkja hvað varðar rétt­indi hinseg­in fólks. Þetta byggði á til­kynn­ingu frá Sam­tök­un­um '78 en það sem dreg­ur Ísland helst niður á þess­um lista er skort­ur á víðtækri jafn­rétt­is­lög­gjöf sem bann­ar mis­mun­un á grund­velli kyn­hneigðar, kyn­vit­und­ar og kyn­ein­kenna. Einnig er lög­gjöf um rétt­indi trans fólks ábóta­vant enda er enn kraf­ist sjúk­dóms­grein­ing­ar og lækn­is­meðferðar til þess að þeir ein­stak­ling­ar geti fengið nafni sínu og kyni breytt í þjóðskrá. Þá er ekki búið að banna ónauðsyn­leg inn­grip í lík­ama in­ter­sex barna og lík­am­leg friðhelgi þeirra er því ekki tryggð, seg­ir í frétt á vef Sam­tak­anna '78. Malta er á toppi Regn­boga­korts­ins með 88% upp­fylltra skil­yrða.

Ísland fer upp um níu sæti frá því í fyrra samkvæmt World Press Freedom vísitölu sam­tak­anna Fjöl­miðlar án landa­mæra og er eitt af þeim tíu ríkj­um í heim­in­um sem mest fjöl­miðlafrelsi rík­ir. Fjögur Norðurlandanna eru í efstu sætu listans. Norður-Kórea er það ríki þar sem fjöl­miðlar búa við minnst frelsi en Banda­rík­in eru í 43. sæti list­ans og Bret­land er í fer­tug­asta sæti. Bæði lönd­in lækka á milli ára en alls eru 180 ríki á list­an­um.

Á vef sam­tak­anna kem­ur fram að vísi­tal­an end­ur­spegli heim­inn eins og hann er í dag þar sem árás­ir á fjöl­miðla verða sí­fellt al­geng­ari og eft­ir á skýr­ing­ar (post-truth), áróður og til­raun­ir til að þagga frelsið til þess að segja satt verða sí­fellt al­geng­ari í lýðræðis­ríkj­um. Ísland lækkaði talsvert á listanum á síðasta ári sem virðist fyrst og fremst rakið til orða Vigdísar Hauksdóttur, þáverandi formanns fjárlaganefndar, um starfsemi RÚV. 

Þriðja mesta bókmenntaþjóðin

Ísland er þriðja mesta bókmenntaþjóð heims en Norðurlandaþjóðirnar raða sér í fimm efstu sætin. Finnar eru í efsta sæti, Norðmenn í öðru, Íslendingar í því þriðja, Danir í fjórða sæti og Svíar í fimmta.

Þetta er niðurstaða rannsóknar á bókmenntaáhuga og lestrar- og skriftarkunnáttu meðal rúmlega sextíu þjóða. Rektor Central Connecticut háskólans í New Britain stýrði rannsókninni og kynnti hana, að því er kom fram í Washington Post í september á síðasta ári. Fram er tekið í fréttinni að þjóðir í Vesturheimi hafi ekki komið vel út í könnuninni. Bandaríkin ná þó sjöunda sæti og Kanada er í því ellefta. 

Ísland er annað mesta raf­bíla­land Evr­ópu en efst í sjálfbærri þróun

Ísland er annað mesta raf­bíla­land Evr­ópu á eft­ir Nor­egi. Þetta kem­ur fram í töl­um sem tekn­ar hafa verið sam­an af EAFO, en það er stofn­un á veg­um Evr­ópuráðsins sem hef­ur eft­ir­lit með þróun og út­breiðslu nýrra orku­gjafa. Tölurnar birtust í upphafi árs. Noregur ber höfuð og herðar yfir alla aðra en þar var hlut­deild raf­bíla í hópi nýrra bif­reiða hvorki meira né minna en 29%. Þau lönd sem raða sér á list­ann á eft­ir Nor­egi og Íslandi eru Svíþjóð með 3,6% hlut­deild, Hol­land með 3,4% og Sviss með 1,8%. Að meðaltali var hlut­deild ný­skráðra raf­bíla í Evr­ópu hins veg­ar aðeins rúmt 1,2% á ár­inu 2016. 

Könnun sem gerð var af vegum Sameinuðu þjóðanna í 188 löndum heims setur Ísland í efsta sæti yfir lönd sem standa best þegar kemur að sjálfbæri þróun. Samkvæmt því, eru íbúar Íslands best í stakk búnir til þess að viðhalda sjálfum sér og komast af í lífsbaráttunni sé miðað við önnur lönd. Upplýsingar um þetta birtust í september á síðasta ári.

Hinir ýmsu þættir eru mældir hvað varðar málefni tengd heilsu, útbreiðslu sjúkdóma, aðgangur að hreinu vatni, baráttu gegn fátækt og menntun. Einnig er mælt fyrir glæpatíðni, dánartölur vegna striðs, offitu barna, atvinnuöryggi og margt fleira. Miðað er við svokallað SDG stuðul (Sustainable Development Goals) sem er reiknaður út frá þáttum sem koma fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna frá því í fyrra (Global Burden of DiseaseInjuriesand Risk Factors Study 2015, GBD 2015).

Það skal tekið fram að þau viðhorf sem birtast í þessum pistli eru eingöngu höfundar og á hans ábyrgð.