Þungt áfall í öryggismálum sjómanna

Öryggi sjómanna verður að vera tryggt, enda íslensk veður válynd …
Öryggi sjómanna verður að vera tryggt, enda íslensk veður válynd og starfsumhverfi stéttarinnar stórhættulegt. mbl.is/Þröstur Njálsson

Landssamband smábátaeigenda lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar fyrirætlunar að skerða fjárframlög til Landhelgisgæslunnar. Gangi hún eftir mun öryggi sjómanna verða fyrir þungu áfalli. 

Ekki lengur hægt að stóla á þyrlu né varðskip þegar alvarleg slys eða veikindi verða, að því er fram kemur í áskorun félagsins til Alþingis.

LS skorar á alþingismenn að tryggja nauðsynlegan rekstur Landhelgisgæslunnar þannig að trygg verði sú þjónusta sem henni er lögskipað að sinna.

Þyrluþjónusta er öryggisþáttur sem ávallt verður að vera vel sinnt og ekki má undir neinum kringumstæðum skerða. 

Landssamband smábátaeigenda lýsir yfir þungum áhyggjum af öryggi sjómanna og …
Landssamband smábátaeigenda lýsir yfir þungum áhyggjum af öryggi sjómanna og skorar á alþingismenn að bregðast við. mbl.is/Árni Sæberg

Landssamband smábátaeigenda ítrekar fyrri samþykktir sínar á nauðsyn þess að ræða við nágrannaþjóðir okkar um hvort hugsanlegt væri að einhver þeirra eða allar gætu ásamt Íslendingum komið að rekstri þyrlna við Norður-Atlantshaf.

Ljóst sé að nokkrar þjóðir hefðu þar beina hagsmuni, eins og Færeyingar, Norðmenn, Danir og Grænlendingar. 

Í framtíðinni gæti þetta samstarf, ef af yrði, jafnvel leitt af sér stofnun sameiginlegrar björgunarmiðstöðvar við N-Atlantshaf með aðsetur hér á landi, að því er fram kemur í áskoruninni sem birt er á vefsvæði Landssambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »