Samkvæmt lauslegu mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins er heildarkostnaður útgerðarinnar vegna greiðslu fæðispeninga sjómanna á fiskiskipum um 2,3 milljarðar króna á ári miðað við gildandi kjarasamninga. Er þá miðað við að fjöldi lögskráningardaga sjómanna sé 1,5-1,6 milljónir daga á ári og að fæðispeningar séu að jafnaði 1.500 krónur á dag. Áætlað tekjutap ríkisins af þeirri fjárhæð, yrði hún undanþegin skatti, er u.þ.b. 730 milljónir króna á ári, en því til viðbótar myndu sveitarfélögin tapa u.þ.b. 330 milljónum króna í útsvarstekjum.
Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins sem vildi að gefnu tilefni árétta ákveðin atriði varðandi skattlagningu fæðispeninga og dagpeninga.
Bent er á að sjómenn fái greidda fæðispeninga samkvæmt kjarasamningum og eru þeir breytilegir eftir stærð skipa. Þeir greiða tekjuskatt og útsvar af reiknuðum fæðispeningum, sem eru skilgreindir sem sérstök hlunnindi. Fæðispeningar eru frádráttarbær rekstrarkostnaður hjá útgerðinni og af þeim er greitt tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð.
Þá eru dagpeningagreiðslur miðaðar við að verja þurfi dagpeningum að fullu til uppihalds, þ.m.t. kostnaðar vegna fæðis. Það er síðan skattyfirvalda að meta hvort á móti þessum dagpeningum standi nægilega há útgjöld með hliðsjón af árlegu skattmati.
Almennt háttar svo um aðra launþega að þeir borga fyrir fæði sem vinnuveitandi tryggir þeim, t.a.m. í mötuneytum, með tekjum sem þegar hafa verið skattlagðar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |