Skiptar skoðanir stjórnarandstöðu

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nokkuð skiptar skoðanir virðast vera meðal stjórnarandstöðuflokkanna um hvort og þá hvernig yfirvöld ættu að bregðast við þeirri stöðu sem er uppi í kjaradeilu sjómanna við útgerðina. Fulltrúar flokkanna lýstu afstöðu sinni í samtali við mbl.is og virðist afstaða þeirra nokkuð ólík vegna verkfallsins. Allir eru þó sammála um mikilvægi þess að sjái fyrir endann á deilunni sem allra fyrst, helst án þess að sett verði lög á verkfallið.

Deiluaðilar funduðu með Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur sjáv­ar­út­vegs­ráðherra í gær en þar lagði ráðherra fram til­lögu um að fram fari heild­stæð grein­ing á því hvernig farið er al­mennt með fæðis­kostnað og greiðslur vegna fæðis í skatta­legu til­liti. Slík grein­ing verði unn­in í sam­vinnu við deiluaðila og eft­ir at­vik­um önn­ur sam­tök launa­fólks og vinnu­veit­enda.

„Við höf­um ekki stutt laga­setn­ingu á verk­föll og telj­um að það þurfi mjög veiga­mik­il rök fyr­ir því að taka samn­ings­rétt­inn af aðilum, sem er stjórn­ar­skrár­bund­inn,“ seg­ir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. Hins veg­ar segir Katrín að flokkurinn hafi, líkt og ýms­ir aðrir, hvatt til þess að stjórn­völd reyni að liðka til fyr­ir lausn deil­unn­ar og „verið opin fyr­ir því að skoða leiðir í því sam­hengi“.

Mark­mið grein­ing­ar­inn­ar sem ráðherra lagði til í gær er að tryggja áfram ein­falda og sann­gjarna skatt­fram­kvæmd og að jafn­ræðis sé gætt milli launþega hvað varðar skatt­la­lega meðferð greiðslna og hlunn­inda vegna fæðis­kostnaðar að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu í dag. 

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

„Við erum með alls kyns svona sérráðstaf­an­ir í skatt­kerf­inu sem eru ekki endi­lega æski­leg­ar. Hins veg­ar vit­um við al­veg að við erum með ýmis svona dæmi og auðvitað verða stjórn­völd að skoða þetta með til­liti til hags­muna,“ seg­ir Katrín og bæt­ir við að kerfið á Íslandi sé fullt af sérráðstöf­un­um. Þó að ég hafi skiln­ing á því að menn vilji horfa á al­menn­ar regl­ur þá er það svo að kerfið sem við búum við er fullt af slík­um sérráðstöf­un­um,“ segir Katrín að lokum.

Framsókn telur aðkallandi að ríkið grípi inn í

„Ég held að það sé bara komið að ríkistjórninni að hún fari að stíga inn í og gera eitthvað sem leysir þessa deilu og við höfum ekkert langan tíma í það,“ Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins í samtali við mbl.is. 

Spurð hvenær hún telji tímabært að yfirvöld grípi inn í segir Þórunn að að sínu mati þurfi það helst að gerast strax í dag. Telur hún þó ekki nauðsynlegt að binda enda á verkfallið með því að grípa til lagasetningar. „Ég held að það sé alveg hægt að leysa þetta með öðrum hætti, eftir samtölum mínum við menn núna þá sýnist mér að það ætti að vera hægt,“ segir Þórunn.  Ein leiðin í stöðunni sé að skoða að veita skattaafslátt af fæðisgjaldi sjómanna. „Þetta er bara orðið mjög aðkallandi, þetta getur ekki dregist."

Píratar á öðru máli

„Okkur er meinilla við það að það sé verið að taka verkfallsréttinn af fólki og það þarf náttúrlega að búa til stöðu þannig að báðir deilendur sitji við sanngjarnt borð því að það virðist vera sem svo sé ekki akkúrat núna,“ segir Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata, í samtali við mbl.is.

Spurð hvort hún telji rétt að yfirvöld hafi afskipti af deilunni með öðrum hætti segir Ásta að það mætti ræða en djúpt samtal þurfi að eiga sér stað áður en farið er í aðgerðir. Þá telur hún brýnt að jafna stöðu samningsaðila en hún telur ljóst að útgerðin hafi sterkari samningsstöðu en sjómenn. 

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata.
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það hefur náttúrlega verið bara gegnumgangandi í gegnum söguna, deilur milli þessara tveggja aðila, þannig það þarf að finna einhverja langtímalausn á þessu,“ segir Ásta Guðrún. Kveðst hún ekki hafa sérstaka skoðun á því hvaða leið væri ákjósanleg. „Þá er bara mikilvægt að séu teknar alvöru, og bara djúpar umræður um þetta og með virðingu fyrir báðum aðilum að mínu mati,“ bætir hún við. En er tími til þess?

„Það bara verður stundum að gefa sér tíma til þess, ég meina það er kannski hægt að gera eitthvað til bráðabirgða en markmiðið þarf náttúrlega að vera að búa til eitthvað sem er stöðugt til frambúðar,“ segir Ásta Guðrún að lokum.

„Við teljum það ekki rétt“

Að sögn Oddnýjar G. Harðardóttur, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, er það afstaða flokksins að ríkið hafi helst engin afskipti af deilunni. „Við teljum það ekki rétt,“ segir Oddný. „Við leggjum bara áherslu á það að deiluaðilar nái samningum, mér finnst það skipta öllu máli og mér finnst að ríkið eigi ekki að koma þar inn í.“ 

Telur hún að ríkið ætti í mesta lagi að setja einhverjar almennar reglur eða bregðast við með einhvers konar almennum hætti án þess að grípa til einhverja séraðgerða. „En auðvitað er þetta verulegt áhyggjuefni hver staðan er, en það þarf að hvetja deiluaðila til að ná saman,“ segir Oddný. Þá segir Oddný að í fljótu bragði hugnist henni ekki sú tillaga sem sjávarútvegsráðherra bar á borð deiluaðila í gær um að stjórnvöld ráðist í heild­stæða grein­ingu á því hvernig farið er al­mennt með fæðis­kostnað og greiðslur vegna fæðis í skatta­legu til­liti.

Oddný Harðardóttir.
Oddný Harðardóttir. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,04 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 473,17 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 198,80 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,64 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,38 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 192,76 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.920 kg
Þorskur 3.967 kg
Skarkoli 603 kg
Hlýri 32 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 10.547 kg
22.4.24 Björgúlfur EA 312 Botnvarpa
Karfi 8.834 kg
Samtals 8.834 kg
22.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 693 kg
Grásleppa 241 kg
Samtals 934 kg
22.4.24 Daðey GK 777 Lína
Þorskur 5.605 kg
Langa 603 kg
Samtals 6.208 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,04 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 473,17 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 198,80 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,64 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,38 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 192,76 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.920 kg
Þorskur 3.967 kg
Skarkoli 603 kg
Hlýri 32 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 10.547 kg
22.4.24 Björgúlfur EA 312 Botnvarpa
Karfi 8.834 kg
Samtals 8.834 kg
22.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 693 kg
Grásleppa 241 kg
Samtals 934 kg
22.4.24 Daðey GK 777 Lína
Þorskur 5.605 kg
Langa 603 kg
Samtals 6.208 kg

Skoða allar landanir »