Kjörsókn frá 10% upp í 70%

Frá undirritun samningsins í Karphúsinu aðfaranótt laugardags. Sjómenn hafa í …
Frá undirritun samningsins í Karphúsinu aðfaranótt laugardags. Sjómenn hafa í gær og í dag kosið um samninginn. Búist er við niðurstöðu í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kjörsókn vegna atkvæðagreiðslu um nýjan samning sjómanna er mjög breytileg eftir stéttarfélögum, en um eina heildarkosningu er að ræða. Hjá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur var um 35% kjörsókn þegar mbl.is náði tali af formanni félagsins rétt fyrir fjögur í dag. Félagið er stærsta aðildarfélag Sjómannasambands Íslands.

Hjá Öldunni í Skagafirði lauk kosningu klukkan eitt í dag og var kjörsókn þar 80%, en 54 voru á kjörskrá. Hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur var kjörsóknin heldur dræm, en aðeins sjö af 64 félagsmönnum höfðu kosið á fjórða tímanum.

Hjá Framsýn á Húsavík var kjörsókn á bilinu 60-70% og sömu sögu var að segja frá Verkalýðsfélagi Snæfellinga. Hjá Verkalýðsfélagi Vestfjarða var kjörsókn 43% rétt fyrir fjögur og hjá Sjómannafélaginu Jötni hafði um helmingur félagsmanna kosið. Hjá Afli í Neskaupstað var kjörsókn rétt undir 50%, en þar var kynningarfundur að hefjast, sem jafnframt er síðasti slíki fundurinn til að fara fram áður en kosningu lýkur á landinu. Hefur venjan verið sú að flestir kjósi að kynningarfundum loknum hjá öðrum félögum.

Kjörseðlar verða í flestum tilfellum sendir suður til Reykjavíkur þar sem talið verður hjá ríkissáttasemjara í kvöld. Þá munu sýslumenn eða lögreglan í einhverjum tilfellum telja atkvæði á viðkomandi stað og koma úrslitum til ríkissáttasemjara. Búist er við að niðurstöður liggi fyrir eftir klukkan átta í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 444,63 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 311,54 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,48 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.974 kg
Þorskur 88 kg
Skarkoli 60 kg
Ýsa 32 kg
Samtals 2.154 kg
19.4.24 Ísey ÞH 375 Grásleppunet
Grásleppa 2.259 kg
Þorskur 79 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 2.346 kg
19.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grálúða 458 kg
Samtals 458 kg
19.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.968 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 444,63 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 311,54 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,48 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.974 kg
Þorskur 88 kg
Skarkoli 60 kg
Ýsa 32 kg
Samtals 2.154 kg
19.4.24 Ísey ÞH 375 Grásleppunet
Grásleppa 2.259 kg
Þorskur 79 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 2.346 kg
19.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grálúða 458 kg
Samtals 458 kg
19.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.968 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »