Öll þrjú skip Eskju, Aðalsteinn Jónsson, Jón Kjartansson og Aðalsteinn Jónsson II, eru nú á kolmunnaveiðum á Rockall-svæðinu og hefur veiði gengið vel.
Skip Eskju hafa klárað sinn loðnukvóta og eru nú komin á kolmunnaveiðar á Rockall-svæðinu.
Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju, segir að vel hafi gengið á öllum vígstöðvum útgerðarinnar á vertíðinni.
„Þessi loðnuvertíð gekk mjög vel hjá Eskju. Aðalsteinn Jónsson kom inn til löndunar með síðustu hrognaloðnuna 14. mars síðastliðinn. Okkar skip fiskuðu tæp 23 þúsund tonn allt í allt á vertíðinni og var Aðalsteinn Jónsson með um 10,5 þúsund tonn af því, Jón Kjartans níu þúsund tonn og Aðalsteinn Jónsson II 3,5 þúsund tonn,“ er haft eftir Páli í tilkynningu.
„Þar að auki landaði grænlenska skipið Qavak 1.450 tonnum af hrognaloðnu og Norðborg frá Færeyjum landaði rúmlega þúsund tonnum í uppsjávarfrystihúsið okkar. Norsku skipin lönduðu samkvæmt mínu bókhaldi um 8,2 þúsund tonnum hjá okkur meðan á verkfallinu stóð. Við tókum því á móti um 28 þúsund tonnum af loðnu á vertíðinni sem var ýmist fryst í nýju uppsjávarfrystihúsi félagsins, brædd í mjöl- og lýsisvinnslunni eða unnin úr henni hrogn. Þannig að við erum mjög ánægð með vertíðina.“
Öll þrjú skip Eskju, Aðalsteinn Jónsson, Jón Kjartansson og Aðalsteinn Jónsson II, eru nú á kolmunnaveiðum á Rockall-svæðinu og hefur veiði gengið vel.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.956 kg |
Þorskur | 404 kg |
Samtals | 5.360 kg |
17.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.474 kg |
Þorskur | 222 kg |
Skarkoli | 27 kg |
Rauðmagi | 17 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 2.744 kg |
17.4.24 Garri BA 90 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 16 kg |
Samtals | 16 kg |
17.4.24 Skúli ST 75 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 2.640 kg |
Þorskur | 2.364 kg |
Steinbítur | 163 kg |
Karfi | 21 kg |
Keila | 14 kg |
Ufsi | 11 kg |
Samtals | 5.213 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.956 kg |
Þorskur | 404 kg |
Samtals | 5.360 kg |
17.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.474 kg |
Þorskur | 222 kg |
Skarkoli | 27 kg |
Rauðmagi | 17 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 2.744 kg |
17.4.24 Garri BA 90 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 16 kg |
Samtals | 16 kg |
17.4.24 Skúli ST 75 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 2.640 kg |
Þorskur | 2.364 kg |
Steinbítur | 163 kg |
Karfi | 21 kg |
Keila | 14 kg |
Ufsi | 11 kg |
Samtals | 5.213 kg |