Síldarvinnslan hefur fært listaskólanum LungA á Seyðisfirði að gjöf gamla netagerðarhús fjarðarins. Húsið er stórt en gamalt og þarfnast verulegs viðhalds, að því er fram kemur í tilkynningu frá Síldarvinnslunni.
LungA er alþjóðlegur listaskóli sem hefur fest rætur og setur mikinn svip á bæjarlífið á Seyðisfirði yfir vetrarmánuðina.
Haft er eftir skólastjóranum Lasse Høgenhof að ómetanlegt sé fyrir skólann að eignast gamla netagerðarhúsið.
„Það er draumur að rætast með því að skólinn eignist þetta hús og við erum Síldarvinnslunni afar þakklát fyrir gjöfina. LungA–skólinn hefur starfað í þrjú ár og hefur vaxið og dafnað,“ segir Lasse.
Frá vinstri: Gunnar Sverrisson verksmiðjustjóri, Lasse Høgenhof skólastjóri, Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri og Snorri Jónsson framleiðslu- og yfirverkstjóri.
Ljósmynd/Hákon Ernuson
Gott að húsið komi að gagni
„Innan skólans er sinnt alls konar list og eitt af því sem skólinn þarf er mikið rými og það fáum við í gamla netagerðarhúsinu. Í húsinu verður komið upp fjölbreyttum vinnustofum sem munu nýtast skólanum afar vel. Auðvitað er húsið gamalt og það þarf að bæta útlit þess en það er verkefni sem þarf að fást við síðar. Það er í einu orði sagt frábært fyrir skólann að fá þessa gjöf.“
Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segir þá ánægjulegt að gamla netagerðarhúsið geti komið að gagni.
„Við höfum fylgst með starfi Lunga–skólans og það er einstaklega metnaðarfullt. Síldarvinnslan vill styðja við bakið á skólanum og hvetja hann til góðra verka og það er frábært að geta orðið að liði og stuðlað að eflingu hans. Það er okkar von að skólinn dafni og honum nýtist þetta húsnæði til kennslu og listsköpunar.“