Arnarlax sjósetur nýjan fóðurpramma

Pramminn hefur hlotið nafnið Arnarborg og verður til sýnis á …
Pramminn hefur hlotið nafnið Arnarborg og verður til sýnis á morgun í höfninni. Ljósmynd/Arnarlax

Fiskieldisfyrirtækið Arnarlax hefur tekið í notkun nýjan og öflugan fóðurpramma sem borið getur 650 tonn af fóðri. Til samanburðar geta hinir tveir prammarnir í eldinu, sem fyrir voru, aðeins borið 300 tonn hvor um sig.

Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarlax, segir í samtali við Morgunblaðið að kaupin á prammanum séu liður í öruggri sókn fyrirtækisins, sem stofnað var árið 2009.

„Þetta er merki um hvað íslenskt fiskeldi er orðið faglegt og er að nota nýjustu tækni og tól til uppbyggingar á greininni hér á Íslandi,“ segir Víkingur.

Pramminn var smíðaður í Eistlandi og kostaði 300 milljónir að sögn Víkings. Allt er til alls þar um borð, eldhús og káetur auk stjórnstöðvar með kraftmiklar ljósavélar.

Starfsfólk Arnarlax sér um fóðrun og fylgist með fiski og …
Starfsfólk Arnarlax sér um fóðrun og fylgist með fiski og búnaði með hjálp tækninnar. Ljósmynd/Arnarlax

Sérútbúið skip til landsins

Arnarlax mun þó ekki láta þar staðar numið.

„Við reiknum með að við smíðum annan pramma að svipaðri stærð. Það sýnir bara hversu mikil uppbygging er í þessum geira, sem er í raun orðinn stór iðnaður hér á landi,“ segir Víkingur.

Pramminn verður settur niður í Tálknafirði síðar í vikunni, af sérútbúnu skipi sem Arnarlax leigir að utan til verksins.

„Það er mjög öflugur vinnubátur sem er meðal annars með kafbát til að skoða allar festingar. Allt er þetta gert eftir ströngustu kröfum því það er það sem við viljum gera, til að koma í veg fyrir hvers kyns óhöpp og slys.“

43 tonn af fóðri á klukkustund

Pramminn getur blásið frá sér allt að 43 tonnum af fóðri á klukkustund sem þykir feikilega kröftugt. Sú geta verður þó ekki fullnýtt um leið og hann verður tekinn í gagnið.

„Þetta fer mjög eftir árstíma og hvenær mest er verið að fóðra. Það er erfitt að segja til um hvenær hann fer upp í þessi mörk en hann getur það að minnsta kosti, sem er lykilatriðið,“ segir hann og tekur dæmi:

„Þetta er eins og bátur sem getur siglt á 40 mílna hraða en þú siglir bara á tuttugu mílum, því þannig er hagkvæmast að reka hann.“

Prammanum er stjórnað úr landi af sérhæfðu starfsfólki Arnarlax í stjórnstöð á Bíldudal, en starfsfólkið fylgist einnig með ástandi fisks og búnaðar í gegnum myndavélakerfi.

„Þannig pössum við að ef fiskurinn étur ekki það sem við setjum út, þá stöðvast fóðrunin. Fylgst er með þessu allan tímann sem verið er að fóðra.“

Arnarlax hefur vaxið hratt frá stofnun fyrirtækisins árið 2009. Stefnt …
Arnarlax hefur vaxið hratt frá stofnun fyrirtækisins árið 2009. Stefnt er núna að smíði nýs pramma. mbl.is/Guðlaugur

Fer út og seldur í Whole Foods

Varla hefur farið fram hjá þeim sem fylgjast með gangi sjávarútvegs sá fjöldi nýrra skipa sem komið hafa til landsins undanfarin misseri. Víkingur segir fjárfestingarnar innan eldisgeirans síst minni. Vöxtur Arnarlax hefur enda verið nokkuð ör frá stofnun fyrirtækisins.

„Við slátrum tíu þúsund tonnum á þessu ári. Héðan frá Bíldudal flytjum við því tíu þúsund tonn af ferskum laxi út um allan heim.“

Stór hluti laxins fer út til Bandaríkjanna og er seldur í Whole Foods-verslunum þar í landi, en sömuleiðis er hann fluttur út til Evrópu og Asíu.

„Og það sem okkur finnst skemmtilegt er að við fáum afskaplega góðar viðtökur við hráefninu hvert sem við komum. Fólki finnst laxinn sérstakur, góður, og hann skorar hátt. Við getum alveg staðið með nefið upp í loft og verið stolt af laxinum okkar. Við köllum þetta íslenskan lax og erum bara stolt af því.“

Fóðrið stærsti liðurinn

Fóðrið er allt fengið að utan að sögn Víkings, þar sem enga fóðurverksmiðju er að finna á Íslandi sem búið getur til fóður af réttum gæðum.

Styrking krónunnar hefur því ekki haft jafn slæm áhrif á eldið og raun ber vitni hjá útgerðunum.

„Fóðrið er náttúrlega stærsti kostnaðarliðurinn og þetta kemur ekki eins harkalega niður á okkur og öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum. En þetta hefur samt talsvert að segja.“

Til sýnis í höfninni á morgun

Að lokum er Víkingur spurður hvert hann horfi þegar litið sé fram á veginn. Hann er snöggur til svars.

„Við viljum fá að vaxa jafnt og þétt í sátt við umhverfið og allt í kringum okkur, og leggjum í það mikinn metnað. Þá horfum við björtum augum fram á veginn í þessum geira, þar sem við höfum góðan möguleika á að auka enn frekar við útflutningstekjur Íslendinga ef rétt er staðið að verki.“

Pramminn hefur fengið nafnið Arnarborg en hann verður til sýnis í Tálknafjarðarhöfn á morgun, fimmtudag, á milli klukkan 16 og 18.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa
Karfi 91.675 kg
Ufsi 10.767 kg
Þorskur 692 kg
Langa 300 kg
Samtals 103.434 kg
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri
Þorskur 708 kg
Samtals 708 kg
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 10.108 kg
Þorskur 718 kg
Ýsa 71 kg
Samtals 10.897 kg
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.233 kg
Þorskur 118 kg
Skarkoli 6 kg
Rauðmagi 4 kg
Þykkvalúra 3 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 1.366 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa
Karfi 91.675 kg
Ufsi 10.767 kg
Þorskur 692 kg
Langa 300 kg
Samtals 103.434 kg
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri
Þorskur 708 kg
Samtals 708 kg
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 10.108 kg
Þorskur 718 kg
Ýsa 71 kg
Samtals 10.897 kg
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.233 kg
Þorskur 118 kg
Skarkoli 6 kg
Rauðmagi 4 kg
Þykkvalúra 3 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 1.366 kg

Skoða allar landanir »